Afmælisgjöfin til þjálfarans var að koma Val í Höllina í fyrsta sinn í 30 ár Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 17. janúar 2017 16:45 Valsmenn fagna sigri á Haukum í gær en Ágúst Björgvinsson kom liðinu í Höllina á afmælisdaginn. Vísir/Anton
1. deildarlið Vals er komið í undanúrslit Maltbikars karla í körfubolta eftir að liðið sló Domino´s deildarlið Hauka út í Valshöllinni í gærkvöldi. Þetta var þriðja úrvalsdeildarliðið sem Valur slær út í ár en liðið hafði áður unnið lið Skallagríms og Snæfells. Það má segja að Valsstrákarnir hafi fært þjálfara sínum frábæra afmælisgjöf en Ágúst Björgvinsson hélt upp á 38 ára afmælið sitt í gær. Ágúst er uppalinn Valsmaður og fór snemma að þjálfa hjá félaginu. Þetta var örugglega með betri afmælisgjöfum sem hann hefur fengið. Það eru liðin 19 ár síðan Valsmenn voru síðast í undanúrslitum karla í körfuboltanum en það er enn lengra síðan að karlalið Valsmanna komst í Laugardalshöllina. Körfuknattleikssamband Íslands bryddar nú upp á þeirri nýjung að hafa öll undanúrslitin líka í Höllinni og spila þau í bikarúrslitaleiksvikunni eins og hefur verið hjá handboltanum síðustu ár. Karlalið Valsmanna var síðast í Laugardalshöllinni í bikarúrslitaleiknum 1987 þegar liðið mátti sætta sig við tap á móti Njarðvík. Leikurinn fór fram 10. apríl 1987 og endaði með 91-69 sigri Njarðvíkinga. Valsmenn hafa unnið bikarinn þrisvar sinnum eða árin 1980, 1981 og 1983 en Valsliðið komst meðal annars fimm sinnum í bikarúrslitaleikinn frá 1978 til 1984. Kvennalið Vals komst aftur á móti í bikarúrslitaleikinn fyrir fjórum árum en tapaði fyrir Keflavík. Þá var einmitt Ágúst Björgvinsson þjálfari liðsins. Hann er því sá eini þjálfarinn sem hefur komið Valsliði í Laugardalshöllina í þrjátíu ár. Valsmenn fá verðugt verkefni í undanúrslitaleiknum því þeir drógust á móti Íslands- og bikarmeisturum KR.Grein úr tímanum um bikarúrslitaleikinn 1987.
Dominos-deild karla Mest lesið PSG - Arsenal 1-1 (4-3) | Vörðu titilinn í vítakeppni Fótbolti Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Körfubolti Arftaki Slot hjá Liverpool fundinn Enski boltinn Af hverju hefst úrslitaleikur Meistaradeildar Evrópu svona snemma? Fótbolti Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Handbolti Slot rekinn frá Liverpool Enski boltinn Bergrós flutt á sjúkrahús: „Gat hvorki gengið né talað“ Sport Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Körfubolti Kolbeinn enn taplaus eftir blóðugan bardaga í Köben Sport „Betra liðið tapaði” Fótbolti Fleiri fréttir Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Óvænt ræða frá goðsögninni blés San Antonio byr í brjóst Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Tryggvi upp fyrir Elvar fyrir uppgjörið á Tenerife Einum sigri frá því að fara í úrslit í fyrsta sinn á öldinni Elvar byrjar vel hjá sínu nýja félagi Halldór Garðar kveður Keflavík Martin stigahæstur í svekkjandi tapi Úr fríi á Spáni til Íslands en endaði aftur á Spáni „Eins og ljósastaur fyrir drukkinn mann“ Fetar í fótspor föður síns og þjálfar Keflavík Þrír ættliðir Íslandsmeistara: „Nú þarftu fimm í viðbót til að ná mér“ Sjá meira