Matthäus: Verður erfitt fyrir Müller að komast í byrjunarliðið Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 5. janúar 2017 17:45 Müller hefur aðeins skorað eitt mark í þýsku úrvalsdeildinni á tímabilinu. vísir/getty
Það verður erfitt fyrir Thomas Müller að komast í byrjunarlið Bayern München á seinni hluta tímabilsins. Þetta segir Lothar Matthäus, fyrrverandi fyrirliði þýska landsliðsins. Müller byrjaði 10 af 16 leikjum Bayern í þýsku úrvalsdeildinni fyrir áramót og skoraði aðeins eitt mark. Í pistli sínum í Sport Bild segir Matthäus að það verði enginn hægðarleikur fyrir Müller að vinna sér sæti í byrjunarliði Bayern.Matthäus er ófeiminn að segja sína skoðun.vísir/getty„Það verður ekkert auðveldara fyrir Thomas Müller að komast í byrjunarlið Bayern á seinni hluta tímabilsins,“ skrifaði Matthäus sem lék með Bayern á árunum 1984-88 og svo aftur frá 1992 til 2000. „Það er engin alvöru staða fyrir hann í leikkerfi Carlos Ancelotti. Arjen Robben er sterkari á hægri kantinum og það er sóknarsinnaður miðjumaður sem spilar fyrir aftan Robert Lewandowski.“ Matthäus segir að Spánverjinn Thiago Alcantara sé framar í goggunarröðinni en Müller. „Ég sé Thiago fyrir mér í þessari stöðu. Hann var góður fyrri hluta tímabilsins og er fjölhæfari en Müller,“ skrifaði Matthäus og bætti því við að Müller fengi einnig harða samkeppni frá portúgalska ungstirninu Renato Sanches. Bayern er á toppnum í þýsku deildinni með 39 stig, þremur stigum á undan Red Bull Leipzig.
Þýski boltinn Mest lesið Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Enski boltinn Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Enski boltinn Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Enski boltinn Gísli kom af fjöllum þegar talið barst að Ljungberg Sport Þjálfari Hákonar grét eftir leik Fótbolti Fjórtán ára drengur gaf sig fram við lögreglu Sport Lést aðeins tveimur árum eftir að hún varð Evrópumeistari Sport „Drengurinn minn á skilið að hans sé minnst með ást en ekki hatri“ Enski boltinn Ítalinn ungi hágrét eftir sögulegan heimsmeistaratitil Formúla 1 Fleiri fréttir Man Utd með nærri 25 prósent líkur á falli Fimmta árið í röð eru Noregsmeistararnir með eina íslenska í liðinu Leikmaður Freys varð fyrir kynþáttaníði frá mótherja Aston Villa hættir við málsókn gegn Carragher Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Ólíklegt að leikmenn Man United séu með fallákvæði í samningum Orða varnarmann Barcelona við Manchester United Þjálfari Hákonar grét eftir leik Iraola mun segja Isak að láta sig falla í framtíðinni „Drengurinn minn á skilið að hans sé minnst með ást en ekki hatri“ Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Messi tryggði Inter Miami mikilvægan sigur Tíunda markið í húsi hjá Sveindísi Jane í lokaleiknum Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Markvörður ársins náði að stöðva Orra Tómas riðaði eftir höfuðhögg og endaði á sjúkrahúsi Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt „Viss um að við gerðum alla ákaflega stolta“ Góðar fréttir fyrir landsliðið og Mikael Egill á uppleið Meistararnir á toppnum eftir langþráðan sigur á Anfield Júlíus með ný skilaboð til landsliðsþjálfarans Real heldur sig nálægt Barcelona Eiður fann til með Liverpool Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Eiður með gæsahúð á Anfield Ída Marín og Guðrún skoruðu í stórsigri Marc McAusland tekur við Njarðvík Ekki unnið á Anfield í 14 ár Sjá meira