Handbolti

Strákarnir í Kristianstad fara brosandi inn í jólin

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Arnar Freyr, Ólafur og Gunnar Steinn skoruðu tvö mörk hver í kvöld.
Arnar Freyr, Ólafur og Gunnar Steinn skoruðu tvö mörk hver í kvöld. vísir/hanna
Íslendingaliðið Kristianstad rúllaði yfir Aranäs, 33-18, í sænsku úrvalsdeildinni í handbolta í kvöld.

Ólafur Guðmundsson, Arnar Freyr Arnarsson og Gunnar Steinn Jónsson skoruðu allir tvö mörk fyrir Kristianstad sem er í 2. sæti deildarinnar með 27 stig, einu stigi á eftir toppliði Alingsås. Kristianstad á leik til góða á Alingsås.

Atli Ævar Ingólfsson skoraði fjögur mörk fyrir Sävehof sem laut í lægra haldi, 31-25, fyrir Eskilstuna Guif á útivelli. Sävehof er í 6. sæti deildarinnar með 22 stig.

Örn Ingi Bjarkason og félagar í Hammarby töpuðu með tveggja marka mun, 24-26, fyrir Skövde á heimavelli. Örn Ingi skoraði eitt mark í leiknum.

Hammarby er í þrettánda og næstneðsta sæti deildarinnar með aðeins fimm stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×