Handbolti

Landin framlengdi við Kiel

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Niklas Landin fagnar í leik með Kiel.
Niklas Landin fagnar í leik með Kiel. vísir/getty
Danska landsliðsmarkverðinum Niklas Landin líður greinilega vel í Kiel.

Nú um jólin framlengdi hann við félagið til ársins 2021.

„Fjölskyldunni líður vel hérna og það er kostur hversu stutt er að fara til Danmerkur. Ég vil endilega halda áfram á sömu braut,“ sagði Landin eftir að hann hafði skrifað undir nýja samninginn.

Landin kom til Kiel á síðasta ári frá Rhein-Neckar Löwen og hefur leikið vel fyrir lið Alfreðs Gíslasonar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×