Handbolti

Polman og Van der Vaart eiga von á barni

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Polman og Van der Vaart eru hér ásamt syni Van der Vaart að tilkynna að brátt verði þau fjögur í fjölskyldunni.
Polman og Van der Vaart eru hér ásamt syni Van der Vaart að tilkynna að brátt verði þau fjögur í fjölskyldunni. mynd/instagram
Hollenska handboltastjarnan Estavana Polman lék ólétt á EM í desember en hún greindi frá því í gær að hún væri barnshafandi.

Unnusti hennar er knattspyrnustjarnan Rafael van der Vaart sem hefur meðal annars leikið fyrir Real Madrid.

Nokkur aldursmunur er á parinu en Polman er 24 ára en Van der Vaart er 33 ára. Van der Vaart á fyrir son með fyrrum eiginkonu sinni. Þetta verður fyrsta barn Polman.

Hún var lykilmaður í frábæru liði Hollands sem fór alla leið í úrslit á EM en tapaði þar fyrir Noregi.

 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×