Handbolti

Erfitt kvöld hjá Íslendingaliðunum

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Atli Ævar skoraði tvö mörk í stórtapi Sävehof.
Atli Ævar skoraði tvö mörk í stórtapi Sävehof. mynd/guif
Það gekk ekki nógu vel hjá Íslendingaliðunum í sænsku úrvalsdeildinni í handbolta í kvöld.

Atli Ævar Ingólfsson skoraði tvö mörk fyrir Sävehof sem steinlá fyrir Skövde á útivelli, 36-26.

Þetta var annað tap Sävehof í síðustu þremur leikjum. Liðið er í 6. sæti deildarinnar með 22 stig.

Daníel Freyr Andrésson varði átta skot í marki Ricoh sem fékk skell gegn Lugi, 33-21. Ricoh er í 10. sæti með 15 stig.

Örn Ingi Bjarkason var ekki á meðal markaskorara hjá Hammarby sem gerði jafntefli, 27-27, við Malmö á heimavelli. Hammarby er í þrettánda og næstneðsta sæti deildarinnar með aðeins sex mörk.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×