Handbolti

Holland skaust í toppsætið

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Yvette Broch fagnar marki í kvöld.
Yvette Broch fagnar marki í kvöld. vísir/getty
Holland er komið í toppsætið í milliriðli I á EM kvenna í handbolta eftir öruggan sigur, 35-27, gegn Serbum í kvöld.

Holland er með sex stig en Þýskaland fimm. Frakkar geta komist upp að hlið Hollands á eftir takist liðinu að skella Svíum á eftir. Serbía er í næstneðsta sæti riðilsins.

Holland var með yfirburði gegn Serbum í dag og leiddi í hálfleik, 17-12. Hollensku stúlkurnar gáfu svo ekkert eftir í síðari hálfleik.

Lois Abbingh og Yvette Broch voru atkvæðamestar í liði Hollands með sex mörk. Jovana Stoiljkovic skoraði átta mörk fyrir Serba.


Tengdar fréttir

Spánverjar köstuðu frá sér sigrinum

Kvennalið Spánverja var svo gott sem komið með fyrstu tvö stigin sin í milliriðli EM í dag en liðið kastaði sigrinum frá sér og varð að sætta sig við jafntefli, 20-20.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×