Handbolti

Stelpurnar hans Þóris komnar í undanúrslit

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Þórir á hliðarlínunni í Svíþjóð.
Þórir á hliðarlínunni í Svíþjóð. vísir/afp
Noregur varð í kvöld fyrsta liðið til þess að tryggja sig inn í undanúrslitin á EM kvenna í handbolta sem fram fer í Svíþjóð.

Noregur vann þá góðan sigur á Ungverjalandi, 24-23. Norsku stúlkurnar þurftu þó að hafa verulega fyrir sigrinum en þegar tíu mínútur lifðu leiks var jafnt í leiknum. Norska liðið sýndi mátt sinn á lokakaflanum og kláraði leikinn.

Noregur er eina liðið á EM sem hefur unnið alla leiki sína til þessa. Noregur spilar við Tékkland í lokaleik sínum í milliriðlakeppninni.

Nora Mörk var markahæst í liði Noregs með sex mörk en Emilie Arntzen skoraði fimm.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×