Skoðun

Hjálp í viðlögum

Ari Traustu Guðmundsson skrifar
Hvað er mikilvægast núna í stjórnmálum? Að mati okkar þingmanna VG eru það brýnar viðgerðir, nánast hjálp í viðlögum, á heilbrigðis- og menntakerfinu, í velferðarmálum og á ýmsum innviðum samfélagsins, t.d. í samgöngum. Af hverju? Af því að það er ákall mikils meirihluta landsmanna eftir hremmingar hrunsins í ein átta ár, nú þegar betur árar en áður á því langa tímabili.

Þessar voru líka kosningaáherslur VG og raunar allra flokka úti í kjördæmunum. Í alllöngum stjórnarmyndunarviðræðum og nú, við umræður um gölluð fjárlög fráfarandi ríkisstjórnar, eru ábyrgar lausnir meginverkefni VG, bæði öndunaraðstoð og hjartahnoð! Lausnirnar felast að sjálfsögðu í öflun fjár umfram tekjuhlið fjárlagafrumvarps sem stendur í um 780 milljörðum króna.

Í kosningavinnu VG voru lagðar fram tillögur um hvar ná ætti í fáeina tugi milljarða króna til umbóta og hvernig þeim skyldi skipt. Mikill hagnaður stórfyrirtækja og banka er staðreynd. Af öðrum dæmum má nefna að af öllum fjármagnstekjum eiga 1-2 prósent eigenda um helming upphæðarinnar. Um 10 prósent landsmanna eiga 60 prósent allra eigna. Launamenn í tveimur efstu tekjuþrepum Hagstofunnar hljóta um helming allra greiddra launa, um 700 milljarða. Ýmsir gjaldstofnar geta hækkað án þess að valda almenningi verulegum vandræðum og veiðigjöld gætu hækkað (með girðingum) sem framlag til samneyslunnar.

Eftir kosningar og þingsetningu hafa málamiðlanir slípað þessar hugmyndir og nú er metið sem svo að fé að upphæð á þriðja tugmilljarð króna þurfi til lágmarksviðgerða á alvarlega skaddaðri samfélagsþjónustunni. Þessu hefur VG haldið á lofti og óskað eftir samstarfi við aðra flokka þar um við myndun stjórnar. Það hefur ekki gengið eftir. Og nokkur mál, hugleikin VG og flokkunum, hafa einnig verið rædd og um margt myndast grunnur að málefnasamstöðu en ekki reynt í alvöru á hana, t.d. í sjávarútvegs- og landbúnaðarmálum.

Áherslan á ríkisfjármál með virkum hluta, af fyrrgreindri stærðargráðu, til úrbóta í tugum verkefna sem hafa verið skorin eða geymd verður kyndill VG í vinnunni við fjárlögin. Þar verður leitað samstöðu við aðra flokka/þingmenn.

Þarna kristallast kannski einhver meirihlutasamstaða um úrbætur jafnt sem stefnu til lengri tíma litið. Þær kunna að leiða til nýrra viðhorfa í stjórnarmyndunarkaplinum.

 

Þessi grein birtist fyrst í Fréttablaðinu.




Skoðun

Skoðun

Börnin okkar

Halla Karen Kristjánsdóttir,Anna Sigríður Guðnadóttir,Valdimar Birgisson skrifar

Sjá meira


×