Stelpurnar hans Þóris vörðu titilinn Henry Birgir Gunnarsson skrifar 18. desember 2016 18:26 Norsku stelpurnar fagna í kvöld. vísir/afp
Noregur varð í kvöld Evrópumeistari í handknattleik kvenna annað mótið í röð. Þórir Hergeirsson, þjálfari liðsins, heldur því áfram að bæta við sig skrautfjöðrum. Noregur lagði Holland, 30-29, í mögnuðum úrslitaleik. Fyrri hálfleikur var jafn og skemmtilegur. Aldrei munaði miklu á liðunum sem nánast héldust í hendur og staðan í hálfleik var 15-15. Nora Mörk fór hamförum í norska liðinu og skoraði sex mörk í hálfleiknum. Danick Snelder skoraði fimm fyrir Holland sem var með betri markvörslu líka í fyrri hálfleiknum. Norska liðið tók frumkvæðið í síðari hálfleik og var 1-2 mörkum yfir. Norska liðið náði svo fjögurra marka forskoti, 24-20, er 18 mínútur voru eftir. Hollenska liðið kom með gott áhlaup undir lokin og hefðu getað jafnað í lokasókninni. Sending úr aukakasti fór aftur á móti í hnéð samherja og Holland tapaði boltanum klaufalega sem og leiknum. Nora Mörk endaði með tólf mörk í liði Noregs og Danick Snelder skoraði sex. Þetta eru sjöttu gullverðlaunin sem Þórir vinnur með norska landsliðinu á sjö árum.
Handbolti Mest lesið Bein útsending: Bakgarðshlaupið í Heiðmörk Sport „Hún var frábær eiginkona, mögnuð móðir sem og amma“ Fótbolti „Átum þá lifandi í fyrri hálfleik“ Enski boltinn McGregor fær ekki keppinaut fyrr en hann er leikfær á ný Sport Dubois rústaði Joshua: „Ég er stríðsmaður allt til enda“ Sport „Það hlaut að koma að því“ Íslenski boltinn Dagskráin í dag: Formúla 1, Bestu deildirnar, Sveindís Jane og NFL Sport Iðrast gjörða sinna: „Var klárlega rangt af mér“ Íslenski boltinn „Allir vilja að við verðum þurrkaðir af yfirborði jarðar“ Enski boltinn Norris á ráspól í Singapúr Formúla 1 Fleiri fréttir Fínn leikur Íslendinganna í Þýskalandi dugði ekki til Þjálfarinn í byrjunarliðinu: „Mér fannst þörf á smá aga í leikinn“ Sjö mörk Jóhönnu hjálpuðu til við að landa fyrsta sigrinum Uppgjörið: Fjölnir - HK 28-27 | Flautumarkið fékk ekki að standa og Fjölnir slapp með sigur Ihor fór mikinn í stórsigri Aftureldingar Fullkomin byrjun lærisveina Arnórs heldur áfram Ólafur með fjögur mörk í fyrsta sigri Karlskrona Aðeins einn löglegur dúkur svo Valur og FH byrja saman í Krikanum Arftaki Kristjáns óvænt hættur Guðmundur miður sín eftir stórtap: „Eitt það versta sem ég hef upplifað lengi“ Elín Klara og Sara Sif sáu um Stjörnuna Slæm byrjun Vals hélt áfram í Garðabænum „Höfðum mýmörg tækifæri til að klára þennan leik miklu fyrr“ „Fyrst og fremst bara ekki nógu sáttur með mína menn“ Gísli Þorgeir bar af í Íslendingaslag kvöldsins Haukar áfram á toppnum með fullt hús stiga Fram áfram með fullt hús Bjarki Már og Orri Freyr með stórsigra í Meistaradeildinni Uppgjörið: FH - ÍBV 33-30 | Góður kafli í fyrri hálfleik skilaði sigri FH-inga Framarar flæktir í óskýrum reglum HSÍ: „Þetta er alveg galið dæmi“ Haukur komið að nítján mörkum í fyrstu tveimur leikjunum í Meistaradeildinni Selfoss átti lítið í Íslandsmeistara Vals „Stefnum á að vera í þessum efri hluta“ Uppgjörið: ÍR - ÍBV 22-22 | Heimakonur komnar á blað Haukur magnaður í sigri á Viktor Gísla og félögum Alfa Brá og Katrín Anna í landsliðið Tímabilið byrjar vel hjá Bjarka sem varð markahæstur í stórsigri Gummersbach gaf mikið eftir í seinni hálfleik Íslendingaliðið byrjar vel í titilvörninni Rakel Dögg: Lokuðum vel varnarlega og Alfa skildi liðin að sóknarlega Sjá meira