Handbolti

Vignir með sex mörk í dramatískum sigri

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Vignir Svavarsson er að spila vel.
Vignir Svavarsson er að spila vel. vísir/getty
Vignir Svavarsson og félagar hans í Team Tvis Holstebro unnu dramatískan heimasigur á GOG í dönsku úrvalsdeildinni í handbolta í kvöld, 30-29.

Gestirnir í GOG komust yfir, 29-28, þegar tvær mínútur og fjörtíu sekúndur voru eftir en Holstebro-liðið jafnaði metin og skoraði svo sigurmarkið um leið og leiktíminn rann út.

Team Tvis Holstebro er nú búið að vinna sex leiki í röð í dönsku úrvalsdeildinni en það er í fjórða sæti með 16 stig, jafnmörg og Bjerringbro-Silkeborg og Álaborg. Skjern skaust á toppinn í kvöld með sigri en það er með 18 stig.

Vignir Svavarsson heldur áfram að spila eins og kóngur á línunni fyrir TTH en í kvöld skoraði hann sex mörk úr sjö skotum og var markahæstur í sínu liði ásamt Martin Hansen.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×