Handbolti

Fjórða tap Karenar og Örnu Sifjar í röð

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Karen skoraði eitt mark úr fjórum skotum.
Karen skoraði eitt mark úr fjórum skotum. vísir/stefán
Það gengur ekki nógu vel hjá Nice í frönsku úrvalsdeildinni í handbolta.

Í kvöld tapaði liðið sínum fjórða leik í röð þegar það fékk Issy Paris í heimsókn. Lokatölur 22-28, Issy Paris í vil.

Karen Knútsdóttir og Arna Sif Pálsdóttir höfðu hægt um sig í leiknum og skoruðu sitt hvort markið.

Nice er í níunda og þriðja neðsta sæti deildarinnar með 13 stig eftir átta umferðir. Það er þó stutt í næstu lið fyrir ofan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×