Handbolti

Löwen steinlá á heimavelli

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Guðjón Valur var frábær í kvöld.
Guðjón Valur var frábær í kvöld. vísir/getty
Þýskalandsmeistarar Rhein-Neckar Löwen fengu á baukinn í Meistaradeildinni í kvöld.

Þó kom makedónska liðið Vardar í heimsókn og vann óvæntan sigur, 27-33. Staðan í hálfleik var 16-17 fyrir Vardar.

Íslendingarnir voru markahæstir í liði Löwen en Guðjón Valur Sigurðsson skoraði 7 mörk og Alexander Petersson 6.

Spánverjinn Joan Canellas, fyrrum leikmaður Kiel, fór á kostum í liði Vardar og skoraði 10 mörk.

Vardar komst með sigrinum í toppsæti B-riðils Meistaradeildarinnar með 12 stig en Löwen er í þriðja sæti með 9. Löwen hefði komist á toppinn með sigri.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×