Willum Þór heldur áfram með KR Tómas Þór Þórðarson skrifar 30. október 2016 15:09 Willum Þór Þórsson kom KR í Evrópukeppni með sögulegri stigasöfnun. vísir/vilhelm
Willum Þór Þórsson mun halda áfram að þjálfa lið KR í Pepsi-deild karla í fótbolta en það verður formlega tilkynnt á blaðamannafundi á morgun, samkvæmt heimildum íþróttadeildar. KR þurfti að bíða með að staðfesta ráðninguna þar sem Willum var að bjóða sig fram til áframhaldandi setu á Alþingi en ljóst er eftir kosningar næturinnar að hann dettur út af þingi.Sjá einnig:Söguleg stigasöfnun Willums Willum var í öðru sæti í suðvesturkjördæmi fyrir Framsóknarflokkinn en þar náðu Framsóknarmenn aðeins einum manni inn. Willum hefur setið á þingi síðan 2013. Willum tók við KR-liðinu í erfiðri stöðu í sumar en reif liðið upp svo um munaði. Söguleg stigasöfnun hans skilaði KR í þriðja sæti deildarinnar en með því náði liðið Evrópusæti sem enginn bjóst við að væri hægt þegar Bjarni Guðjónsson var látinn fara. Undir stjórn Willums vann liðið níu leiki af þrettán, gerði tvö jafntefli og tapaði aðeins tveimur. Hann safnaði 29 stigum og bætti með því stigamet Rúnars Kristinssonar frá 2010 en KR fékk þá 25 stig eftir að Rúnar tók við af Loga Ólafssyni um miðjan júlí. Samkvæmt heimildum Vísis verður líklega sama þjálfarateymi áfram í vesturbænum en Arnar Gunnlaugsson mun að öllum líkindum halda áfram sem aðstoðarþjálfari og Henrik Bödker verður sömuleiðis áfram markvarðaþjálfari.
Kosningar 2016 Pepsi Max-deild karla Mest lesið Vondur dagur varð enn verri fyrir fyrirliða Man. United Enski boltinn Knattspyrnusamband Asíu tekur U-beygju í málum Infantino Fótbolti Lygilegur uppgangur: „Besta botnlangaaðgerð í sögunni“ Fótbolti Bayern gefur út yfirlýsingu vegna veikinda Kompany Fótbolti Verðlauna stuðningsmenn sína fyrir að nota ekki símana Fótbolti Enn eitt áfallið fyrir Stjörnuna – Viktor meiddist illa Körfubolti Aston Villa - Manchester City 2-1 | Fyrstu töpuðu stig City í deildinni Enski boltinn Vann erfitt utanvegahlaup þrátt fyrir brákað rifbein Sport Brautryðjendur heiðraðir í Vesturbænum Körfubolti FH-konur töpuðu leiknum og titlinum en fengu bæði stóru verðlaunin Íslenski boltinn Fleiri fréttir KR - Breiðablik | Slær Aron markametið? ÍA - Keflavík | Geta náð besta árangri í mörg ár FH - Þór | Ævintýri Þórsara fullkomnað? KA - ÍBV | Taka gestirnir KA-menn með sér niður? Stjarnan - Valur | Kveðjustund í Garðabæ Leikur FH og Þórs færður vegna frosts Sjáðu fimmu Hrafnhildar Ásu í lokaumferðinni FH-konur töpuðu leiknum og titlinum en fengu bæði stóru verðlaunin „Þetta er bara ólýsanlegt” „Fólk var alveg að efast en ég vissi alltaf að þetta myndi detta” Gylfi: „Við erum ódýrasta liðið í þessari deild“ Bríet Fjóla: „Sjálfstraustið er komið til baka“ Uppgjörið: Þróttur-Grind/Njarðv. 3-2 | Markaveisla í seinni Uppgjörið: ÍBV - Stjarnan 2-0 | Sannfærandi sigur tryggði ÍBV bronsið Uppgjörið: Breiðablik-FH 6-2 | Ása með fimm mörk í meistarasýningu Blika Matthías í stað Viktors við hlið Sölva „Förum inn í daginn til þess að njóta“ Höttur slítur samstarfi og FHL heyrir sögunni til FH-ingurinn sem er fljótastur í Evrópu: „Góð gen eða eitthvað“ „Á morgun mun ég reima á mig takkaskóna í síðasta sinn“ Líf tilnefnd til tvennra verðlauna Matthías hættur hjá Val Svona missti Aron markið sögulega Akranesvöllur sundurgrafinn og handónýtur Hólmar Örn hættur: „Þakklátur fyrir allt ferðalagið“ ÍA fékk skömm í hattinn en undirbýr byltingu Framlengir í Vesturbænum „Hverjir í fjandanum eru í markanefnd?“ Sjáðu mörkin sex og rauða spjaldið í Dalnum Bætti stoðsendingametið sem faðir hans átti í tuttugu ár Sjá meira