Handbolti

Aron markahæstur í Póllandi

Guðmundur Marinó Ingvarsson skrifar
Framan af var allt inni hjá Aroni
Framan af var allt inni hjá Aroni vísir/epa
Aron Pálmarsson fór mikinn þegar Veszprém gerði 28-28 jafntefli við Wisla Plock í Póllandi í Meistaradeild Evrópu í handbolta í dag.

Aron skoraði 7 mörk úr jafn mörgum skotum í fyrri hálfleik en Veszprém var einu marki yfir í hálfleik 14-13.

Ekki gekk eins vel hjá Aroni í seinni hálfeik en hann skoraði alls 8 mörk úr 12 skotum en Aron kom Veszprém tveimur mörkum yfir, 28-26, þegar tæplega tvær og hálf mínúta var eftir af leiknum.

Renato Sulic var næst markahæstur fyrir ungverska liðið með 7 mörk en Momir Ilic fékk tækifæri til að tryggja Vezprém sigurinn úr vítakasti þegar örfáar sekúndur voru eftir en náði ekki að skora.

Króatinn Sime Ivic skoraði 8 mörk fyrir pólska liðið og portúgalinn Tiago Rocha 5.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×