Handbolti

Aron fékk tíu nýja samherja | Öll félagaskiptin í Meistaradeildinni

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Aron Pálmarsson fékk silfrið í Meistaradeildinni í vor en var kosinn bestur á úrslitahelginni í annað sinn.
Aron Pálmarsson fékk silfrið í Meistaradeildinni í vor en var kosinn bestur á úrslitahelginni í annað sinn. vísir/getty
Handboltavefsíðan Hballtransfers.com er búin að henda upp lista yfir öll félagaskipti liðanna 28 sem spila í Meistaradeildinni í vetur.

Eins og í fyrra er henni skipt þannig að 16 bestu liðum álfunnar eru sett í tvo riðla þannig stórleikir verða á dagskrá í hverri umferð en „slakari“ liðin eru svo í öðrum tveimur riðlum og keppast um laus sæti á meðal þeirra allra bestu í 16 liða úrslitunum.

Aron Pálmarsson, leikmaður Veszprém í Ungverjalandi sem tapaði úrslitaleiknum á ótrúlegan hátt í maí, hefur þurft að fara í nafnaleikinn nokkrum sinnum á undirbúningstímabilinu en ungversku meistaranir fengu til sín tíu nýja leikmenn.

Veszprém ætlar sér greinilega sigur í Meistaradeildinni en það samdi til dæmis við slóvensku landsliðsmennina Dragan Gajic (hægra horn) og línumanninn sterka Blaz Blagotinsek. Þá er króatíska skyttan Marko Kopljar einnig komin til Veszprém.

Guðjón Valur Sigurðsson er vitaskuld á listanum eftir að hann færði sig um set frá Barcelona til Rhein-Neckar Löwen en nokkrir nýir Íslendingar koma inn í Meistaradeildina eftir að skipta um lið í sumar.

Gunnar Steinn Jónsson spilar með sænska liðinu Kristianstad eftir komu sína frá Gummersbach sem og Arnar Freyr Arnarsson sem kom frá Fram. Vignir Svavarsson spilar með Team Tvis Holstebro en sigurbergur Sveinsson er búinn að yfirgefa liðið og spilar nú með ÍBV.

Allan listann yfir komna og farna hjá Meistaradeildarliðunum má sjá hér.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×