Umfjöllun: Þýskaland - Ísland 33-21 | Stórtap í Stuttgart og Ísland úr leik Stefán Árni Pálsson skrifar 5. júní 2016 16:30 Arna Sif Pálsdóttir er næstmarkahæst í liði Íslands í undankeppninni. vísir/eyþór
Þjóðverjar rúlluðu yfir íslenska kvennalandsliðið í handknattleik, 33-21, í lokaleik riðlakeppninnar um laust sæti á EM í lok árs. Leikurinn fór fram í Stuttgart og átti íslenska liðið aldrei möguleika í dag. Betri aðilinn hirti því stigin tvö. Nú er það endanlega ljóst að Ísland verður ekki með á EM síðar á árinu og þarf HSÍ að fara í algjöra naflaskoðun þegar kemur að íslenska kvennalandsliðinu, liðið er engan veginn samkeppnishæft á erlendri grundu. Leikurinn í dag var síðasti leikur Ágústs Jóhannssonar sem landsliðsþjálfari liðsins og býður ærið verkefni fyrir þann aðila sem tekur við starfinu. Ísland fékk aðeins tvö stig í riðlinum, en Frakkar og Þjóðverjar eru komnir á EM. Þjóðverjar voru sterkari alveg frá fyrstu mínútu í dag og sást strax í hvað stefndi. 14 útileikmenn Þjóðverja skoruðu í leiknum í dag, sem er með ólíkindum og sýnir hversu mikla breidd liðið er með. Saskia Lang var atkvæðamest í liði Þjóðverja og skoraði sex mörk en markaskorið dreifðist mjög á milli leikja. Sólveig Lára Kjærnested og Karen Knútsdóttir skoruðu báðar fjögur mörk fyrir Ísland í dag. Það er ljóst að mikið verkefni er framundan í íslenskum kvennahandknattleik og þarf liðið að fara í algjöra naflaskoðun. Varnarleikur liðsins í dag var í molum og hefði Ísland tapað mun stærra ef Íris Björk hefði ekki varið ágætlega. Sóknarleikurinn er hugmyndasnauður og endar oftast á erfiðu skoti fyrir utan. Liðið á ekkert erindi á EM í lok árs, það er ekki nægilega gott.
Handbolti Mest lesið Bein útsending: Bakgarðshlaupið í Heiðmörk Sport „Hún var frábær eiginkona, mögnuð móðir sem og amma“ Fótbolti Uppgjörið: KR - Vestri 2-2 | Guy Smit bjargaði stigi fyrir KR Íslenski boltinn „Hundrað kílómetrar að drepast úr sýkingu er bara fínt“ Sport Albert skoraði tvö í fyrsta leiknum fyrir Fiorentina Fótbolti Í beinni: Man. City - Arsenal | Risaleikur í enska Enski boltinn Bellingham kallaði dómarann skíthæl Fótbolti Thelma Norður-Evrópumeistari í stökki Sport Uppgjörið: Keflavík - ÍR 2-3 | Keflvíkingar í úrslitaleikinn Íslenski boltinn Dubois rústaði Joshua: „Ég er stríðsmaður allt til enda“ Sport Fleiri fréttir Orri skoraði þrjú er Sporting valtaði yfir Íslendingaslaginn Fínn leikur Íslendinganna í Þýskalandi dugði ekki til Þjálfarinn í byrjunarliðinu: „Mér fannst þörf á smá aga í leikinn“ Sjö mörk Jóhönnu hjálpuðu til við að landa fyrsta sigrinum Uppgjörið: Fjölnir - HK 28-27 | Flautumarkið fékk ekki að standa og Fjölnir slapp með sigur Ihor fór mikinn í stórsigri Aftureldingar Fullkomin byrjun lærisveina Arnórs heldur áfram Ólafur með fjögur mörk í fyrsta sigri Karlskrona Aðeins einn löglegur dúkur svo Valur og FH byrja saman í Krikanum Arftaki Kristjáns óvænt hættur Guðmundur miður sín eftir stórtap: „Eitt það versta sem ég hef upplifað lengi“ Elín Klara og Sara Sif sáu um Stjörnuna Slæm byrjun Vals hélt áfram í Garðabænum „Höfðum mýmörg tækifæri til að klára þennan leik miklu fyrr“ „Fyrst og fremst bara ekki nógu sáttur með mína menn“ Gísli Þorgeir bar af í Íslendingaslag kvöldsins Haukar áfram á toppnum með fullt hús stiga Fram áfram með fullt hús Bjarki Már og Orri Freyr með stórsigra í Meistaradeildinni Uppgjörið: FH - ÍBV 33-30 | Góður kafli í fyrri hálfleik skilaði sigri FH-inga Framarar flæktir í óskýrum reglum HSÍ: „Þetta er alveg galið dæmi“ Haukur komið að nítján mörkum í fyrstu tveimur leikjunum í Meistaradeildinni Selfoss átti lítið í Íslandsmeistara Vals „Stefnum á að vera í þessum efri hluta“ Uppgjörið: ÍR - ÍBV 22-22 | Heimakonur komnar á blað Haukur magnaður í sigri á Viktor Gísla og félögum Alfa Brá og Katrín Anna í landsliðið Tímabilið byrjar vel hjá Bjarka sem varð markahæstur í stórsigri Gummersbach gaf mikið eftir í seinni hálfleik Íslendingaliðið byrjar vel í titilvörninni Sjá meira