Vinna við Panama-skjölin svonefndu hefur verið á hendi fjögurra fjölmiðla. Þessir miðlar hafa getað valið hverjum verði kastað fyrir ljónin hverju sinni, og hverjum skuli hlíft. Í því felast mikil völd.
Því miður er ekki að sjá að þeir sem fara með þessi völd hafi sérstaka ábyrgðartilfinningu eða kunni að skilja Kjarnann frá hisminu.
Þannig er oft á tíðum ekki um miklar uppljóstranir að ræða, heldur í raun upplýsingar sem hafa alla tíð verið opinberar í fyrirtækjaskrám hinna ýmsu landa. Leyndin er ekki meiri en svo, en með því að vísa sí og æ til Panama-skjalanna er þetta sett í þann búning að verið sé að fletta ofan af leynimakki miklu.
Í mörgum tilfellum virðist sem ekkert óeðlilegt sé á ferðinni. Athafnafólk, sem búsett hefur verið erlendis til fjölda ára, á félög á erlendri grundu, stundar sín viðskipti þar og borgar sína skatta og skyldur. Varla sérstaklega fréttnæmt.
Í öðrum tilvikum eru tengingarnar svo langsóttar að varla er annað hægt en að skella upp úr. Þætti blaðamanninum sanngjarnt að þurfa að bera ábyrgð á viðskiptum látins tengdaföður síns?
Fáránleikinn nær þó hæsta stigi þegar hann er farinn að bíta sjálfa stjörnublaðamennina í afturendann. Þannig hefur Vilhjálmur Þorsteinsson, einn aðaleigenda Kjarnans, nú sagt sig úr stjórn félagsins þar sem hann sagði ósatt um aflandseignir sínar. Raunar er furðulegt að siðapostularnir á Kjarnanum hafi ekki ýtt við Vilhjálmi fyrr, en eignarhlutur hans er í gegnum félagið Miðeind ehf., sem aftur er í eigu Meson Holding sem skráð er í Lúxemborg.
Meðal annarra eigna Meson Holding var hlutur í fjárfestingafélaginu Teton, sem margoft hefur komið fram að hagnaðist gríðarlega á skortstöðum gegn íslensku krónunni. Aðspurður á sínum tíma, sagðist Vilhjálmur ekki geta tjáð sig enda upplýsi hann aldrei um einstakar fjárfestingar. Hið sama virtist ekki eiga við um fjárfestingu hans í Kjarnanum sem hann hefur verið óhræddur að tjá sig um.
Nú er spurning hvort er alvarlega í huga forsvarsmanna Kjarnans, að segja ósatt um aflandseign, eða að hafa hagnast á, og ásamt öðrum, stuðlað að hruni krónunnar meðan heimilisbókhaldið hjá flestum stóð í ljósum logum?
Kannski hefðu Kjarnamenn átt að vinna heimavinnuna sína betur áður en þeir völdu sér fjárfesta. Eitt er víst að nú þurfa þeir að styrkja stoðir glerhússins – áður en það hrynur til grunna.
Kjarni málsins
Stjórnarmaðurinn skrifar

Mest lesið

Íslandshótel taka að óbreyttu yfir rekstur Nordica og Natura
Viðskipti innlent

Að tilkynna vinnufélaga til lögreglu
Atvinnulíf

Kínverjar svara fyrir sig og hækka enn tolla á bandarískar vörur
Viðskipti erlent

Órói á mörkuðum heldur áfram og gullverð aldrei hærra
Viðskipti erlent

Icelandair skrúfar fyrir fría gosið
Viðskipti innlent

Enginn sjái eftir því á dánarbeðinum að hafa ekki unnið meira
Viðskipti innlent


Ánægjulegt að breið sátt liggi fyrir um uppgjör vegna ÍL-sjóðs
Viðskipti innlent

