Handbolti

Ekkert mark hjá Ólafi en Kristianstad vann

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Mynd/Kristianstad
Kristianstad er komið í 2-0 forystu í rimmu liðsins gegn Redbergslid í 8-liða úrslitum sænsku úrvalsdeildarinnar í handbolta með sigri í leik liðanna í kvöld, 27-25.

Sigra þarf þrjá leiki til að komast áfram í undanúrslitin. Ólafur Guðmundsson spilaði með Kristianstad í kvöld en komst ekki á blað að þessu sinni.

Næsti leikur í rimmunni fer fram í Kristianstad á fimmtudagskvöldið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×