Handbolti

Karen sterk í glæsilegum útisigri

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Karen Knútsdóttir.
Karen Knútsdóttir. vísir/vilhelm
Karen Knútsdóttir átti mjög góðan leik er franska liðið Nice hóf úrslitakeppnina í Frakklandi af krafti.

Karen skoraði fimm mörk í góðum útisigri, 19-24, Nice gegn Besancon. Þetta var fyrsti leikur liðanna í átta liða úrslitum.

Mörkin fimm skoraði Karen úr tíu skotum en hún lék í 35 mínútur í kvöld.

Arna Sif Pálsdóttir lék í átta mínútur en komst ekki á blað.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×