Skoðun

Nánast ekkert

Þórunn Egilsdóttir skrifar
Ísland er í einstakri stöðu. Atvinnuþátttaka hefur sjaldan verið jafn mikil og nú. Í raun hefur atvinnuleysi ekki verið minna síðan árið 2008 og getur jafnvel farið niður í eitt til tvö prósent í sumar þegar störfum innan ferðaþjónustunnar fjölgar.

Í heildina hafa skapast um 15.000 ný störf á Íslandi frá árinu 2013. Þar hafa störf innan ferðaþjónustunnar sitt að segja en innan hennar hafa á síðustu fimm árum, samkvæmt mælingum Hagstofunnar, orðið til 7.500 ný störf. Fram kemur í Félagsvísum 2015 að samhliða fjölgun starfa fækkar þeim sem atvinnulausir eru. Árið 2014 voru atvinnuleitendur 9.300 á móti 13.700 árið 2010 þegar afleiðingar efnahagshrunsins fóru að skila sér af fullum þunga. Til marks um að við höfum rétt úr kútnum má benda á að langtímaatvinnuleysi minnkar ört. Milli áranna 2013 og 2014 fækkaði körlum sem höfðu leitað vinnu í tólf mánuði eða lengur um helming eða úr 1,2 prósentum í 0,6 prósent. Hlutfall kvenna lækkaði úr 1,0 prósenti í 0,7 prósent.

Atvinnutækifærum fjölgar og fjölbreytni starfa eykst. Vöntun á störfum eru ekki okkar helstu áhyggjur í dag heldur miklu fremur þær að fólk vanti til að sinna þeim. Í raun er staðan þannig að flestum, sem vilja og getu hafa, stendur starf til boða.

Stöðugleikinn sem náðst hefur skapar störf. En tölurnar hér að ofan eru hvorki sjálfsagðar né sjálfsprottnar. Á þessu kjörtímabili hefur ríkisstjórnin lagt áherslu á að efla þrótt samfélagsins og skapa skilyrði til verðmætasköpunar, til að mynda með lækkun skatta og tryggingargjalds og auknum stuðningi við nýsköpun. Með jafnvægi í ríkisfjármálum, ábyrgri áætlun um losun hafta og ábyrgri hagstjórn hefur myndast aukinn stöðugleiki á Íslandi. Sá stöðugleiki skapar skilyrði fyrir fyrirtækin til aukinna fjárfestinga sem aftur skapa svo fleiri störf.

Grunnforsenda velferðarsamfélags er atvinna. Við viljum að fólk geti valið sér fjölbreyttar leiðir í lífinu og hafi kost á að sinna þeim störfum sem það helst kýs. Það er mikilvægt að stjórnvöld hverju sinni séu meðvituð um nauðsyn þess að styðja við fjölbreytt og vaxandi atvinnulíf. Nú gengur vel og því mikilvægt að halda einbeitingunni. Stefnan er sú að sækja ávallt fram.




Skoðun

Skoðun

Börnin okkar

Halla Karen Kristjánsdóttir,Anna Sigríður Guðnadóttir,Valdimar Birgisson skrifar

Sjá meira


×