Tónlist

i-D frumsýnir nýtt myndband Samaris

Birgir Örn Steinarsson skrifar
Í myndbandinu má sjá þau áhrif sem blóðrauður máni hefur á þrjár stúlkur.
Í myndbandinu má sjá þau áhrif sem blóðrauður máni hefur á þrjár stúlkur. Visir/Þóra Hilmars
Íslenska rafsveitin Samaris frumsýndi í gær nýtt myndband á vefsíðu tískutímaritsins i-D. Lagið, sem er án efa það poppaðasta sem sveitin hefur sent frá sér til þessa, heitir „Wanted 2 Say“ og er það fyrsta sem þau sleppa lausu af væntanlegri þriðju breiðskífu sveitarinnar „Black Lights“ sem kemur út í júní.

Myndbandið er með glæsilegra móti en það er verk leikstjórans Þóru Hilmarsdóttur sem hefur upp á síðkastið ferðast á milli landa með stuttmynd sína Sub Rosa sem einmitt vann San Diego Film Festival í fyrra. Andi myndbandsins, sem skotið er í íbúahluta gömlu herstöðvarinnar í Keflavík, minnir um margt á stemmninguna í sænsku vampýrumyndinni „Lat den ratte komma in“ sem gert er eftir sömu bók og Þjóðleikhússýningin vinsæla „Hleyptu þeim rétta inn“.

„Það var svolítið stemningin sem við vorum að leita að, svipuðum drunga og er að finna þar,“ segir Þóra en myndbandið er allt tekið upp um hánótt. Í myndbandinu má sjá þau áhrif sem töfrandi blóðrauður máni hefur á þrjár íslenskar stúlkur.

Þóra við tökur í London þar sem hún gerði verðlauna stuttmynd sína.Vísir/Þóra Hilmars
Gerir ekki greinamun á kven- og karlkyns geirvörtum

Í grein sinni tekur blaðamaður i-D það sérstaklega fram að myndbandið styðji free-the-nipple hreyfinguna en glitta má í geirvörtu einnar leikkonunnar við enda lagsins.

„Það var aldrei neitt mál að hafa þetta hluta af þerri hreyfingu. Seinna vöruðu bresku umboðsmenn sveitarinnar mér við því að þetta gæti orðið til þess að erfiðara yrði að sjá það á Youtube. Við tókum þó þá ákvörðun að hafa geirvörtuna inni. Mér finnst persónulega að það ætti ekki að gera greinamun á karlkyns og kvenkyns geirvörtum. Það er svo nýtt í tónlistarmyndböndum að þetta sé leyft“.

Þóra Hilmarsdóttir var í listaháskóla í London og hefur verið með annað fótinn þar í sjö ár. Hún vinnur nú að annarri stuttmynd sem heitir Frelsun og verður tekin upp á Íslandi í sumar.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×