Handbolti

Arnór og félagar gerðu góða ferð til Hvíta-Rússlands

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Arnór skoraði fjögur mörk gegn Minsk.
Arnór skoraði fjögur mörk gegn Minsk. vísir/afp
Arnór Atlason skoraði fjögur mörk þegar Saint-Raphael tryggði sér sæti 8-liða úrslitum EHF-bikarsins í handbolta með tveggja marka sigri á SKA Minsk, 31-33, á útivelli í dag.

Leikurinn var hreinn úrslitaleikur um sæti í 8-liða úrslitunum en Arnóri og félögum dugði jafntefli til að komast áfram.

Þeir gerðu gott betur og sóttu sigur á erfiðan útivöll. Danski línumaðurinn Alexander Lyngaard var markahæstur í liði Saint-Raphael með níu mörk.

Franska liðið fékk sjö stig og endaði í 2. sæti C-riðils, tveimur stigum á eftir Bjerringbro-Silkeborg frá Danmörku.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×