Gunnar Nelson í viðtali í Ástralíu á dögunum | Hlustið á viðtalið

Íslenski bardagamaðurinn hefur vakið mikla athygli fyrir framgöngu sína í UFC undanfarin ár og hróður hans hefur borist út um allan heim.
Gunnar Nelson var fenginn í útvarpsviðtal hjá The Submission Radio í Ástralíu á dögunum. Gunnar talaði þá um bardagann við Albert Tumenov, tapið á móti Demian Maia og að sjálfsögðu vin sinn Conor McGregor.
Viðtalið við Gunnar hefst eftir 30 mínútur og 7 sekúndur í þættinum en það er hægt að hlusta á það allt í spilaranum í gær.
Viðtalið hófst á því að Gunnar var spurður út í íslenska veðrið en svo barst talið af bardaga Conor McGregor og Nate Diaz sem Conor tapaði mjög óvænt.
„Mér fannst Conor vera að vinna bardagann en svo kláraði hann sig á öllum þessum höggum. Hann var að berjast við stærri mann og hefði kannski átt að nota hraðann örlítið meira í stað þess að treysta á kraftinn og reyna öll þessi högg,“ segir Gunnar Nelson um bardaga McGregor og Diaz á UFC 196.
Gunnar er á því að Conor McGregor hafi gert taktísk mistök í bardaganum en ekki teknísk mistök og það hafi kostað Írann sigurinn.
Gunnar Nelson talar einnig um tapið sitt í desember, komandi bardaga í maí og þá talaði hann einnig um Hafþór Júlíus Björnsson sem er betur þekktur sem „The Mountain" úti í hinum stóra heimi.
Gunnar var einnig fenginn til að segja sitt álit á því hvort að The Mighty Ducks 2 kvikmyndin gefi upp ranga ímynd af Íslandi en allir slæmu strákarnir komu þá frá Íslandi.
Viðtalið við Gunnar tekur um 24 mínútur og þar er því rætt um ýmislegt.
Tengdar fréttir

Þjálfari Conors: Gæti ekki verið stoltari
John Kavanagh, þjálfari Conors McGregor og Gunnars Nelson, segir engan hafa hugmynd um hversu mikið Conor McGregor leggur á sig.

Svona æfðu Conor og Gunnar fyrir síðasta bardaga
UFC setti í loftið í gær nýja sjónvarpsþáttaröð þar sem fylgst er með Conor McGregor æfa sig fyrir bardaga.

Gunnar Nelson hélt risapartý á Vegamótum - Myndir
Bardagakappinn Gunnar Nelson og Jón Viðar Arnþórsson, formaður Mjölnis, héldu risapartý á Vegamótum síðastliðin föstudag.

Gunnar farinn til Dublin að aðstoða Conor
Conor McGregor er að undirbúa sig á fullu þessa dagana fyrir titilbardaga í léttvigt gegn meistaranum Rafael dos Anjos.

Gunnar: Spenntur fyrir að berjast aftur í Evrópu
Gunnar Nelson mætir rússneska rotaranum Albert Tumenov í Rotterdam í maí.

Gunnar Nelson stefnir á það að vinna fjóra bardaga á árinu 2016
Gunnar Nelson stígur aftur inn í búrið í maí eftir fimm mánaða fjarveru. Hann segist ekki finna fyrir meiri pressu en áður. Hann hefur trú á vini sínum Conor McGregor um helgina en enga trú á því að þeir muni berjast síðar.

Gunnar berst líklega ekki aftur fyrr en í maí
Gunnar Nelson steig síðast í búrið þann 12. desember síðastliðinn í Las Vegas og það verður bið á því að hann berjist aftur.

Strákarnir sem ætla að koma Gunnari Nelson í rétta bardagagírinn
Gunnar Nelson er á fullu að undirbúa sig fyrir komandi bardaga á móti Rússanum Albert Tumenov en þeir munu berjast í Rotterdam í Holland 8. maí næstkomandi.