Níu ár síðan leikmaður skoraði af svona löngu færi í NBA | Myndband Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 9. febrúar 2016 13:30 Andre Drummond fær hér harðar móttökur í leik í NBA. Vísir/EPA
Andre Drummond, miðherji Detroit Pistons í NBA-deildinni í körfubolta, þykir vera allt annað en góður skotmaður utan af velli og vítanýting hans er hræðileg. Hann skoraði samt ótrúlega körfu í leik á móti Toronto Raptors í nótt. Drummond endaði þriðja leikhlutann á því að vinna boltann og kasta honum yfir allan völlinn rétt áður en leiktíminn rann út. Langskot Drummond, sem var innan eigin þriggja stiga línu sveifa alla leið og fór beint ofan í körfuna hinum megin. Þriggja stiga karfa en ætti kannski að vera sex stiga karfa enda var Andre Drummond á bak við tvær þriggja stiga línur þegar hann skaut. Andre Drummond tók skot sitt af 71 feta færi sem eru tæplega 22 metrar. Það er hægt að sjá körfuna hans í myndbandinu hér fyrir neðan. Leikmaður hafði ekki skorað körfu af lengra færi í NBA-deildinni í níu ár eða síðan að LeBron James skoraði yfir allan völlinn árið 2007. Slæm skotnýting Andre Drummond (17 prósent skotnýting af 10 til 15 feta færi) og skelfileg vítanýting (35 prósent) hafa verið til umræðu á þessu tímabili en besti frákastari deildarinnar náði aðeins að svara fyrir sig með þessari ótrúlegu körfu. Andre Drummond og félagar í Detroit Pistons liðinu þurftu þó að sætta sig við tap í leiknum.
NBA Mest lesið PSG - Arsenal 1-1 (4-3) | Vörðu titilinn í vítakeppni Fótbolti Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Körfubolti Af hverju hefst úrslitaleikur Meistaradeildar Evrópu svona snemma? Fótbolti Arftaki Slot hjá Liverpool fundinn Enski boltinn Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Handbolti Slot rekinn frá Liverpool Enski boltinn Bergrós flutt á sjúkrahús: „Gat hvorki gengið né talað“ Sport Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Körfubolti Þrír líklegustu dottnir úr leik Sport „Betra liðið tapaði” Fótbolti Fleiri fréttir Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Óvænt ræða frá goðsögninni blés San Antonio byr í brjóst Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Tryggvi upp fyrir Elvar fyrir uppgjörið á Tenerife Einum sigri frá því að fara í úrslit í fyrsta sinn á öldinni Elvar byrjar vel hjá sínu nýja félagi Halldór Garðar kveður Keflavík Martin stigahæstur í svekkjandi tapi Úr fríi á Spáni til Íslands en endaði aftur á Spáni „Eins og ljósastaur fyrir drukkinn mann“ Fetar í fótspor föður síns og þjálfar Keflavík Þrír ættliðir Íslandsmeistara: „Nú þarftu fimm í viðbót til að ná mér“ Elvar Már óvænt til Tenerife út tímabilið Sjá meira