Öll lið myndu sakna Arons Pálmarssonar
Aron Kristjánsson landsliðsþjálfari sagði á blaðamannafundi í gær að það væri dagamunur á nafna sínum en að hann væri allur að koma til. Hann taldi ólíklegt að hann myndi spila með í æfingaleikjunum í Þýskalandi en væri vongóður um næstu æfingaleiki þar á eftir og um þátttöku hans á HM í Katar.
Snorri Steinn Guðjónsson leikstjórnandi hafði ekki miklar áhyggjur af honum enda ástandið á leikmannahópnum almennt gott. „Það er bara einn leikmaður meiddur núna. Fyrir EM í fyrra snerist öll umræða um hversu mikil meiðsli væri í hópnum en það er allt annað upp á teningnum nú,“ sagði hann.
„Mér sýnist að það ríki almenn bjartsýni um að Aron verði með og ég er líka bjartsýnn þangað til annað kemur í ljós. Auðvitað myndu öll lið sakna leikmanns eins og hans. Aron er á góðum degi einn besti handboltamaður heims og hann hefur verið í þrusuformi síðustu vikur og mánuði. Við söknum hans og erum betur settir með hann innanborðs.“
Dagur Sigurðsson, þjálfari Þýskalands, segir augljóst að fjarvera hans setji strik í undirbúning Íslands. „Hver mínúta sem hann missir af á æfingum er tapaður tími en ég held að öll liðin sem eru á leið til Katar séu að glíma við meiðsli og fjarveru sterkra manna. Það má ekki gera of mikla dramatík úr þessu máli þó svo að vissulega sé fjarvera hans áfall fyrir íslenska liðið,“ segir Dagur.
Tengdar fréttir
Aron má ekki nota grímu á HM | Landsliðsþjálfarinn enn vongóður
Aron Kristjánsson veitti frekari tíðindi af meiðslum Arons Pálmarssonar á blaðamannafundi í dag.
Landsliðsfyrirliðinn fordæmir árásina á Aron
„Ég skil ekki hvernig svona lagað getur gerst – að það skuli ráðist á annan mann algjörlega tilefnislaust. Það er fyrir neðan allar hellur. Ég vona að það verði kært og komist til botns í þessu máli,“ sagði landsliðsfyrirliðinn Guðjón Valur Sigurðsson um líkamsárásina sem félagi hans í landsliðinu, Aron Pálmarsson, varð fyrir um helgina.
Aron: Næsta sem ég veit að ég ligg í jörðinni
Segir að árásin á sig hafi veirð með öllu tilefnislaus.
Aron varð fyrir líkamsárás um helgina
Ráðist á landsliðsmanninn Aron Pálmarsson í miðbæ Reykjavíkur.
Formaður HSÍ um árásina á Aron: Lögreglan að skoða myndbandsupptökur
Guðmundur B. Ólafsson, formaður HSÍ, tjáði sig um líkamsárásina á landsliðsmanninn Aron Pálmarsson í samtali við Eirík Stefán Ásgeirsson á æfingu íslenska handboltalandsliðsins í dag.
Aron Palmarsson beaten up in late night brawl
Aron Palmarsson, handball player with Kiel in Germany and the Icelandic national team, was injured in a late night brawl downtown Reykjavik this past weekend.
Aron: Tilefni til umhugsunar
Landsliðsþjálfari Íslands í handbolta segir að árásin á Aron Pálmarsson sýnir að menn þurfi að fara varlega og passa sig.