Guðjón St. Marteinsson, dómari við Héraðsdóm Reykjavíkur, mun ekki dæma í Aurum Holding-málinu vegna vanhæfis. Þetta er niðurstaða Hæstaréttar sem kvað upp dóm sinn í gær.
Áður hafði Guðjón sjálfur komist að þeirri niðurstöðu í héraði að hann væri ekki vanhæfur í embætti dómara í málinu.
Í dómi Hæstaréttar er vísað „til ummæla sem héraðsdómarinn hafði látið falla í tölvubréfi svo og í blaðagrein sem fylgdi bréfinu en ekki var komið á framfæri til opinberrar birtingar. Taldi Hæstiréttur að orð dómsformannsins væru hlutlægt séð fallin til að draga mætti með réttu í efa að hugur hans gagnvart sérstökum saksóknara væri með þeim hætti að tryggt væri að óhlutdrægni yrði gætt við úrlausn málsins,“ eins og segir í niðurstöðu réttarins.
Ólafur Þór Hauksson, sérstakur saksóknari, fór fram á að Guðjón myndi víkja sæti og var málið tekið fyrir í héraði í um miðjan september.
Taldi Ólafur að efast mætti um óhlutdrægni Guðjóns vegna orða dómsformannsins, annars vegar í tölvupósti til ríkissaksóknara sem sendur var í febrúar á þessu ári og hins vegar í grein sem Guðjón hugðist birta í Fréttablaðinu sumarið 2014 vegna ummæla sem höfð voru eftir Ólafi Þór í fjölmiðlum stuttu eftir að dómur féll í fyrra.
Niðurstaða Hæstaréttar nú þýðir að tveimur af þremur dómurum í Aurum-málinu hefur verið gert að víkja sæti en sýknudómur héraðsdóms var ómerktur í Hæstarétti fyrr á þessu ári vegna vanhæfis annars dómara, Sverris Ólafssonar.
Málið bíður því nýrrar aðalmeðferðar í héraði en ekki liggur fyrir hvenær hún verður.
Guðjón þarf að víkja sæti í Aurum-málinu

Tengdar fréttir

Sérstakur saksóknari telur dómsformann í Aurum-málinu hliðhollan sakborningum
Munnlegur málflutningur um kröfu ákæruvaldsins þess efnis að Guðjón St. Marteinsson víki sæti í Aurum-málinu fór fram í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun.

Telja að dómarinn hafi ekki tekið afstöðu til sakarefnisins með skrifum sínum
Óttar Pálsson, verjandi Lárusar Welding, fór fram á það fyrir dómi í dag að ekki yrði fallist á kröfu sérstaks saksóknara þess efnis að Guðjón St. Marteinsson, dómsformaður, víki sæti í Aurum-málinu vegna vanhæfis.

Guðjón þarf ekki að víkja
Guðjón St. Marteinsson verður dómari í Aurum Holding-málinu þrátt fyrir kröfu Sérstaks saksóknara um að hann viki sökum vanhæfis.