Íslenski boltinn

Kampavínið áfram í kæli

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Heimir Guðjónsson svekktur eftir annað mark Breiðabliks.
Heimir Guðjónsson svekktur eftir annað mark Breiðabliks. vísir/anton
Breiðablik á ekki mikinn möguleika á að verða Íslandsmeistari karla í fótbolta, en liðið var samt staðráðið í því í gær að láta FH-inga ekki fagna titlinum á sínum heimavelli. FH þurfti aðeins jafntefli í Kópavoginum í gærkvöldi til að tryggja sér sjöunda Íslandsmeistaratitilinn en allt kom fyrir ekki.

Útlitið var gott þegar Atli Guðnason kom FH yfir á 72. mínútu með sínu 60. marki í efstu deild. Blikar svöruðu því með tveimur mörkum á næstu sex mínútum, en þar voru að verki Jonathan Glenn (en ekki hver?) og Damir Muminovic.

FH verður að bíða í eina viku í það minnsta en verður meistari með því að vinna Fjölni á heimavelli sínum í Kaplakrika næsta laugardag.

Blikar gulltryggðu Evrópusætið með sigrinum í gær, en það var þeirra aðalmarkmið. Arnar Grétarsson er, eins og flestir sem fylgjast með Pepsi-deildinni vita, búinn að smíða ansi gott fótboltalið í Kópavoginum.

Leikirnir gegn efstu liðunum hafa verið mjög flottir. Blikar náðu í jafntefli gegn FH á útivelli þar sem verðandi Íslandsmeistararnir jöfnuðu í uppbótartíma og unnu FH svo í gær.

Breiðablik gerði enn fremur tvö jafntefli við KR og vann Valsmenn í tvígang, 1-0. Þetta eru níu stig af tólf mögulegum gegn liðunum sem eru og voru í baráttu um titilinn.

vísir/anton
Leiknir í vandræðum

Nýliðar Leiknis eru í vondum málum þegar tvær umferðir eru eftir, en liðið er enn með fimmtán stig, nú fjórum stigum frá öruggu sæti eftir glæsilega endurkomu Eyjamanna í gærkvöldi sem tryggði þeim eitt stig gegn Val í Vestmannaeyjum.

Leiknismenn horfðu eflaust ágætlega björtum augum til síðustu þriggja leikjanna þrátt fyrir stöðuna, en liðið átti eftir leiki gegn Fylki, sem hefur verið slökkt á, og Keflavík, sem er löngu fallið.

En Fylkismenn dúkkuðu upp með stjörnuframmistöðu í Lautinni í gær og voru komnir 3-0 yfir gegn Leiknismönnum eftir hálftíma. Leiknir hefur átt í miklu basli með að skora í allt sumar og setti ekki sárabótarmark fyrr en í uppbótartíma.

Ástæðan fyrir því að Leiknir hefur hangið í séns í fallbaráttunni þetta lengi er sterkur varnarleikur liðsins og skipulag. Það var aðeins búið að fá á sig 23 mörk eftir 18 umferðir, en nú er vörnin að opnast á versta tíma. Breiðhyltingar eru búnir að fá á sig sex mörk í síðustu tveimur leikjum og virðast stefna hraðbyri niður um deild.

Keflavík þarf enn fimm stig til að verða ekki slakasta liðið (hvað stigin varðar) í sögu tólf liða deildar. Þá er það aðeins fimm mörkum frá „markametinu“ yfir flest mörk fengin á sig í tólf liða deild.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×