Fleiri fjöldagrafir flóttamanna finnast í Malasíu Jóhann Óli Eiðsson skrifar 23. ágúst 2015 23:48 Frá vettvangi í vor. vísir/epa
Yfirvöld í Malasíu hafa fundið aðra fjöldagröf sem talið er að geymi lík flóttamanna frá nærliggjandi löndum. 24 lík voru í gröfinni en hún fannst í Perlis héraði skammt frá landamærunum að Taílandi. BBC segir frá. Önnur gröf, sem innihélt 139 flóttamenn, fannst á svipuðum slóðum í maí. Grafir hafa einnig fundist í öðrum löndum í kring svo sem Mjanmar og Taílandi. Hinir látnu eiga það flestir sameiginlegt að vera Rohingya múslimir frá Mjanmar eða Bangladess. Þeir yfirgefa land sitt í leit að betra lífi. Fjölmargir lenda í klónum á smyglum sem ýmist selja fólkið áfram eða reyna að rukka fjölskyldur fórnarlambanna um lausnargjald. Sé það ekki greitt bíður aðeins jörðin þeirra. Rohingya múslimir hafa í gegnum tíðina verið hundeltir í heimalandinu. Sameinuðu þjóðirnar áætla að um og yfir 120.000 þeirra hafi yfirgefið Mjanmar undanfarin þrjú ár. Áður reyndu þeir að komast til Malasíu með landleiðinni í gegnum Taíland en eftir að taílensk stjórnvöld skáru upp herör gegn flóttamönnum hafa þeir í frekari mæli reynt að fara sjóleiðina á flekum og bátum. Líkin hafa verið send í frekari rannsóknir. Yfirvöld í Malasíu og Taílandi gáfu út í kjölfar fundanna í vor að þau myndu gera allt sem í þeirra valdi stendur til að koma í veg fyrir mansal. Sem komið er virðist það ekki hafa borið nægan árangur.
Flóttamenn Mest lesið Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent „Noregur sökkar“ Erlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Stjórnarskráin trompi alltaf bókun 35 Innlent Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent Lægðin fyrr á ferðinni Veður Vučić játar ósigur Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Nóg sé komið af Trump Erlent Leikur á hnífsegg í Brasilíu Erlent Fleiri fréttir „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Sjá meira