Handbolti

Toft Hansen til Flensburg

Henrik Toft Hansen.
Henrik Toft Hansen. vísir/getty
Líkt og venjulega safnar þýska úrvalsdeildarliðið Flensburg dönskum landsliðsmönnum.

Flensburg er rétt við landamæri Danmerkur og því hentar það Dönum vel að spila þar. Stutt að skjótast heim er þeir fá frí.

Í gær tilkynnti Flensburg að félagið væri að fá danska landsliðsmanninn Rasmus Lauge frá Kiel. Nú er annar Dani á leiðinni þangað og það er Daninn Henrik Toft Hansen.

Hann er bróðir Rene Toft Hansen sem leikur með Kiel en Henrik hefur verið að spila með Hamburg.

Fyrir hjá félaginu eru Danirnir Thomas Mogensen, Anders Eggert og Lasse Svan Hansen.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×