Handbolti

Barcelona neitar að tapa

Guðjón Valur í leik með Barcelona.
Guðjón Valur í leik með Barcelona. mynd/barcelona
Barcelona vann í kvöld enn einn stórsigurinn í spænska handboltanum.

Að þessu sinni vann Barcelona sextán marka sigur, 46-30, gegn Villa de Aranda.

Barcelona er búið að vinna alla 26 leiki sína í deildinni og fyrir nokkru búið að tryggja sér titilinn.

Guðjón Valur Sigurðsson skoraði þrjú mörk úr þrem skotum í kvöld.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×