Handbolti

Barcelona spænskur deildarmeistari

Anton Ingi Leifsson skrifar
Barcelona fagnar. Guðjón Valur er lengst til hægri á myndinni.
Barcelona fagnar. Guðjón Valur er lengst til hægri á myndinni. vísir/twitter-síða Barcelona
Guðjón Valur Sigurðsson og félagar í Barcelona eru spænskir deildarmeistarar í handbolta, en Barcelona hefur ekki tapað leik í spænsku deildinni í vetur.

Barcelona rúllaði yfir MMT Seguros Zamora í dag, en lokatölur urðu 45-19 sigur Barcelona.

Staðan í hálfleik var 28-4, en Guðjón Valur Sigurðsson komst ekki á blað fyrir Barcelona. Guðjón Valur skaut ekki að marki í leiknum og eru allar líkur á því að hann hafi verið hvíldur.

Jesper Noddesbo skoraði tíu mörk fyrir Barcelona, en alls komust tólf leikmenn á blað fyrir Barcelona.

Barcelona hefur ekki tapað leik í vetur, en þeir fögnuðu titlinum í dag sem er 22. deildarmeistaratitill félagsins í handbolta.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×