Handbolti

Mikilvægur sigur Guif

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Vísir
Guif hafði í kvöld betur gegn Redbergslid, 26-25, í þriðja leik liðanna í undanúrslitarimmu þeirra í úrslitakeppni sænsku úrvalsdeildarinnar í handbolta.

Þar með tók Guif 2-1 forystu í rimmunni en næsti leikur liðanna fer fram á fimmtudagskvöldið í Gautaborg. Þar getur Guif tryggt sér sigur í undanúrslitunum.

Guif náði mest sex marka forystu í leiknum en Redbergslid náði að minnka muninn í eitt mark með því að skora fjögur síðustu mörk leiksins, það síðasta á lokasekúndunni.

Aron Rafn Eðvarðsson átti góðan leik í marki Guif í kvöld og Atli Ævar Ingólfsson ar í hópi markahæstu leikmanna liðsins með fjögur mörk.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×