Innlent

Hlutfall endurnýjanlegs eldsneytis tífaldast á fjórum árum

Samúel Karl Ólason skrifar
Vísir/GVA
Hlutfall endurnýjanlegs eldsneytis í samgöngum á landi hefur tífaldast síðan 2010. Hlutfallið fór úr 0,2 prósentum í 2,4 prósent. Íslenskt endurnýjanlegt eldsneyti var 23 prósent af heildarmagni eldsneytis sem notað var til samgangna árið 2014.

Á síðustu fjórum árum hefur það hlutfall tífaldast. Margvisst hefur verið unnið að því að hækka hlutfallið í samræmi við þingsályktun Alþingis og aðgerðaáætlun henni tengdri.

Þetta kemur fram í nýrri skýrslu um þróun orkuskipta í samgöngum, sem Ragnheiður Elín Árnadóttir, iðnaðar- og viðskiptaráðherra kynnti á ríkisstjórnarfundi.

Á vef Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins segir að aukningin í endurnýjanlegu eldsneyti sé mun meiri en búið var að gera ráð fyrir. Þá hefur hlutfall eldsneytis sem framleitt er hér á landi fimmfaldast frá 2010.

Ný fyrirtæki hafa tekið til starfa sem framleiða endurnýjanlegt eldsneyti og fjöldi vistvænna bíla hefur þrefaldast frá 2010. Þar að auki hefur aðgengi að endurnýjanlegu eldsneyti batnað mikið með tilkomu nýrra innviða og sölustöðum metans hefur fjölgað. Þá hafa verið reistar hraðhleðslustöðvar á höfuðborgarsvæðinu.

Stefnt er að því að skýrslan verði lögð fyrir Alþingi nú á vorþingi til kynningar og umfjöllunar. Í kjölfarið verði svo unnin ný aðgerðaráætlun um orkuskipti í samgöngum sem verði vegvísir um næstu skref og hún lögð fyrir Alþingi á komandi haustþingi sem tillaga til þingsályktunar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×