Heyrðu nýja lagið frá Sölku Sól og Gnúsa Yones Birgir Olgeirsson skrifar 15. apríl 2015 17:59 Salka Sól Eyfeld. Vísir/Ernir
Hér er komið nýtt lag sem nefnist Það sem skiptir mestu máli og er samið af Sölku Sól og Gnúsa Yones í Amabadama. Lagið er samið í tilefni af Barnamenningarhátíð í Reykjavík sem hefst á þriðjudaginn í næstu viku og eiga allir fjórðu bekkingar í grunnskólum Reykjavíkur hlutdeilt í laginu. Börnin fengu fræðslu í tengslum við 100 ára kosningaafmæli kvenna um mikilvægi þess að allir fái að segja sína skoðun og hafa áhrif á samfélagið. Var markmiðið að vekja börnin til umhugsnunar um stöðu jafnréttismála þá og nú og hvetja þau til gagnrýnnar hugsunar og þjálfa þau í að hafa áhrif á líf sitt og umhverfi. Þau unnu í hópavinnu og kusu svo þau réttindi sem þeim fannst mikilvægust. Sömdu þau Salka Sól og Gnúsi síðan texta upp úr þessum réttindaóskum. Amabadama mun flytja lagið í Eldborg á opnunarathöfn Barnamenningarhátíðar 21. apríl þar sem öllum fjórðu bekkingum í Reykjavík er boðið og taka þau þátt í flutningnum. Barnamenningarhátíð í Reykjavík er fyrir börn og unglinga frá 2 ára til 16 ára með um 120 viðburði fyrir alla aldurshópa. Hún er haldin 21. – 26. apríl í næstu viku. Hægt er að kynna sér dagskrána á www.barnamenningarhatid.is. "Það sem skiptir mestu máli" - Lag Barnamenningarhátíðar Reykjavíkur 2015 from SFS Myndband on Vimeo.
Tónlist Mest lesið Hundleið á að bíða eftir karlmanni og greip í taumana Lífið Anora óvæntur sigurvegari á Óskarnum Bíó og sjónvarp Sýnir vonandi öðrum konum að lífið er ekki búið eftir þrítugt Lífið Steldu stílnum af heimili Kristínar Péturs Lífið Tróð Bjarna og fjölskyldu í Toyota Yaris Lífið Stjörnulífið: Kærleiksríkir menn á Bessastöðum Lífið Tengdist Hopkins í gegnum tólf spora ferlið Lífið Flytur ekki inn í lúxusíbúðina Lífið Lifir lífinu við óbærilegan sársauka Lífið Fermingargjöf sem lifir um ókomin ár Lífið samstarf Fleiri fréttir Daniil og Birnir í eina sæng Angie Stone lést í bílslysi „Frelsi til að gera allt sem þig langar til“ Þessi eru tilnefnd til Íslensku tónlistarverðlaunanna Bein útsending: Tilnefningar til Íslensku tónlistarverðlaunanna Draumurinn rættist að syngja með Bubba Gekk 20 metra á 35 mínútum í tíu gráðu frosti The Smashing Pumpkins til Íslands Þau fóru áfram í úrslit söngvakeppninnar Sjá meira