Handbolti

Guif þarf að fara í oddaleik

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Kristján Andrésson er þjálfari Guif.
Kristján Andrésson er þjálfari Guif. Vísir
Atli Ævar Ingólfsson skoraði þrjú mörk er Guif tapaði fyrir Redbergslid, 26-23, í 8-liða úrslitum úrslitakeppni sænsku úrvalsdeildarinnar í kvöld.

Guif hefði með sigri tryggt sér sæti í undanúrslitunum en Redbergslid náði með sigrinum að knýja fram oddaleik í rimmunni. Staðan í henni er nú 2-2.

Aron Rafn Eðvarðsson stóð í markinu hjá Guif í leiknum en Kristján Andrésson er þjálfari liðsins. Sigur heimamanna var nokkuð öruggur en eftir jafnan fyrri hálfleik náði Redbergslid að síga fram úr um miðjan síðari hálfleik.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×