Handbolti

Snorri Steinn klikkaði á þremur vítum í kvöld

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Snorri Steinn Guðjónsson
Snorri Steinn Guðjónsson Vísir/Eva Björk
Snorri Steinn Guðjónsson fór illa með vítin í tapi síns liðs í franska handboltanum í dag en lið hans tapaði þá Íslendingaslag á móti góðvini hans úr landsliðinu, Róberti Gunnarssyni.

Arnór Atlason var með fjögur mörk og þrjár stoðsendingar þegar  Saint Raphael vann 36-33 heimasigur á Aix. Arnór nýtti fjögur af fimm skotum sínum í leiknum og var þriðji markahæsti leikmaður liðsins.

Paris vann öruggan tíu marka sigur á Sélestat, 36-26, eftir að hafa verið 19-10 yfir í hálfleik.

Róbert Gunnarsson skoraði fjögur mörk fyrir PSG og nýtti öll skotin sín í leiknum. Hann tapaði hinsvegar fimm boltum.  Snorri Steinn Guðjónsson skoraði þrjú mörk úr níu skotum en hann klikkaði meðal annars á þremur vítum í leiknum.

Ásgeir Örn Hallgrímsson skoraði fjögur mörk þegar Nimes tapaði 31-27 á útivelli á móti Nantes. Ásgeir þurfti sjö skot til þess að skora þessu fjögur mörk.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×