Handbolti

Sjáðu það besta með Aroni Pálmarssyni á tímabilinu

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Jóhannes Patreksson, sonur Patreks Jóhannessonar, heldur áfram að klippa saman frábær myndbönd af bestu handboltamönnum heims.

Jóhannes er með Youtube-rásina IceHandball IH þar sem hann dælir inn myndböndum eftir sjálfan sig.

Hann gerði t.a.m. myndband af Frakkanum Nicola Karabatic í síðasta mánuði sem Karabatic þakkaði Jóhannesi fyrir á Twitter- og Facebook-síðum sínum.

Nú hefur Jóhannes klippt saman myndband með helstu tilþrifum Arons Pálmarssonar, leikmanns Kiel og íslenska landsliðsins. Aron hefur verið mikið meiddur á leiktíðinni en spilað frábærlega þegar hann hefur verið með.

Meðal annars má sjá í myndbandið markið ótrúlega gegn Hamburg sem Alfreð Gíslason hreinlega hló að það var svo magnað.

Myndbandið af Aroni má sjá hér að ofan en hér að neðan má finna nokkur önnur glæsileg myndbönd eftir Jóhannes Patreksson.

Hvor er betri: Omeyer eða Landin? Karabatic tilþrif: Það besta með Guðjóni Val í Barcelona:



Fleiri fréttir

Sjá meira


×