Handbolti

Biegler stýrir bæði Hamburg og pólska landsliðinu

Biegler í banastuði á HM.
Biegler í banastuði á HM. vísir/epa
Hinn skrautlegi þjálfari pólska landsliðsins, Michael Biegler, er væntanlega að taka við þýska liðinu Hamburg.

Viðræður eru í gangi og virðist fátt geta komið í veg fyrir að hann taki við þýska liðinu. Viðræðurnar eru þó erfiðar að því leyti að Biegler er enn með samning við pólska handknattleikssambandið.

Pólverjar vilja að Biegler verði með liðið fram yfir EM í janúar á næsta ári og verður þjálfarinn því líklega með bæði lið þar til EM lýkur.

Hamburg er til í að vinna með pólska sambandinu og leyfa Biegler að sinna sínu starfi með pólska liðið. Þar af leiðandi er fátt sem ætti að koma í veg fyrir að hann taki við liðinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×