Handbolti

Arna og Karen verða liðsfélagar í Nice

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Arna Sif hefur verið öflug með Aarhus í vetur.
Arna Sif hefur verið öflug með Aarhus í vetur. vísir/valli
Landsliðskonan Arna Sif Pálsdóttir hefur gert tveggja ára samning við franska úrvalsdeildarliðið Nice. Arna gengur til liðs við franska liðið eftir tímabilið. Þetta kemur fram í franska blaðinu Nice-Matin.

Arna sem er 27 ára, hefur spilað vel með SK Aarhus í vetur. Línumaðurinn hefur skorað 71 mark í 22 leikjum og er í 26. sæti yfir markahæstu leikmenn dönsku deildarinnar.

Hjá Nice hittir Arna fyrir Karenu Knútsdóttur, stöllu sína í landsliðinu. Karen gekk til liðs við Nice fyrir þetta tímabil en liðið er í 5. sæti frönsku deildarinnar og hefur þegar tryggt sér sæti í úrslitakeppninni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×