Handbolti

Stórtap gegn Rússum

Anton Ingi Leifsson skrifar
Lovísa var markahæst í leiknum í gær.
Lovísa var markahæst í leiknum í gær. Vísir/þórdís inga
U17 ára landslið kvenna í handknattleik steinlá fyrir Rússum í undankeppni Evrópumóts kvenna skipað leikmönnum 17 ára og yngri kvenna, en leikið var í Færeyjum í gær. Lokatölur urðu 34-17 sigur Rússa.

Rússar leiddu allan leikinn og staðan var til að mynda 17-8 fyrir Rússunum í hálfleik. Lovísa Thompson skoraði fimm mörk fyrir Ísland, en þær Andrea Jacobsen og Karen Tinna Demian komu næstar með þrjú mörk hvor.

Ísland mætir Tékklandi í dag. Rússland vann Tékkland með sömu tölum og þær unnu Ísland, 34-17.

Frá þessu var greint á vef Morgunblaðsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×