Handbolti

Öruggt hjá Berlínarrefunum

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Dagur stýrði sínum mönnum til sigurs í dag.
Dagur stýrði sínum mönnum til sigurs í dag. vísir/getty
Lærisveinar Dags Sigurðssonar í Füchse Berlin unnu 15 marka sigur, 37-22, á serbneska liðinu HC Vojvodina í EHF-bikarnum í handbolta í dag.

Það var aldrei spurning hvorum megin sigurinn myndi enda en Berlínarrefirnir leiddu með sjö mörkum í hálfleik, 18-11.

Tékkneski landsliðsmaðurinn Pavel Horak var markahæstur í liði Füchse með átta mörk, en Konstantin Igropulo kom næstur með sex mörk.

Dagur og hans menn eru með fjögur stig eftir tvo leiki í C-riðli en auk Füchse og Vojvodina eru Skjern og Porto í riðlinum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×