Handbolti

Níu íslensk mörk þegar Löwen fór áfram

Anton Ingi Leifsson skrifar
Stefán Rafn fagnar marki í leik með Löven.
Stefán Rafn fagnar marki í leik með Löven. Vísir/Getty
Rhein-Neckar Löwen tryggði sér sæti í 16-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu með sigri á Chekhovskie Medvedi í Rússlandi í dag, 32-26.

Löven var sterkari aðilinn í leiknum og var fjórum mörkum yfir í hálfleik, 18-14.

Sex marka sigur Löwen urðu svo lokatölur þar sem níu íslensk mörk litu dagsins ljós.

Stefán Rafn Sigurmannsson var næst markahæstur Ljónanna með fimm mörk, en Alexander Petersson skoraði fjögur.

Löwen er því komið áfram eins og fyrr segir, en Medvedi situr á botni riðilsins með eitt stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×