Ekki hægt að hafa áhrif á dómarana 6. febrúar 2015 12:45 Serbnesku dómararnir voru í eldlínunni í undanúrslitunum. vísri/epa
Formaður dómaranefndar IHF hafnar allri gagnrýni um að dómurum hafi verið mútað á HM eða reynt að hafa áhrif á þá á nokkurn hátt. „Þar til klukkan 10 að morgni leikdags veit enginn nema ég hvaða dómarar dæma hvaða leik. Formaður IHF, Hassan Moustafa, skiptir sér ekkert af. Hann treystir mér fyrir þessu," segir Manfred Prause, yfirmaður dómaramála hjá IHF.Sjá einnig: Dómararnir hjálpuðu Katar í úrslit Hann hefur mátt þola mikla gagnrýni vegna dómaramála á HM sem nú er nýlokið. Ekki bara fyrir hvernig var dæmt heldur fyrir að kynna ekki nýjar áherslur fyrr en degi fyrir mót. Kjartan Steinbach, fyrrum yfirmaður dómaranefndar IHF, gagnrýndi hann einnig fyrir að hafa yfirmann dómaramála í Evrópu, Dragan Nachevski, sem eftirlitsmann er sonur Nachevski dæmdi leik Katar og Þýskalands í átta liða úrslitum HM.Sjá einnig: Er ekki kominn tími til að leggja IHF niður? Nachevski var einnig eftirlitsmaður á undanúrslitaleiknum hjá Katar og Kjartan gagnrýndi það einnig. Prause er ekki til í að taka mikla ábyrgð á dómgæslunni á mótinu og skellir skuldinni á dómaranna. „Því miður voru dómararnir ekki að fara nógu vel eftir áherslunum sem lagt var upp með. Það var gert of mikið úr brotum gegn hornamönnum. Það er ekki nóg að kunna reglurnar. Það er líka mikilvægt að geta lesið leikinn. Það þarf sérstaka hæfileika til þess að vera toppdómari," sagði Prause sem er nú í leit að slíkum dómurum.
HM 2015 í Katar Tengdar fréttir Er ekki kominn tími til að leggja IHF niður? Christer Ahl, fyrrum formaður dómaranefndar IHF, vandar sínum gömlu félögum ekki kveðjurnar. 6. febrúar 2015 11:00 Mest lesið Kári og Logi vilja henda Ými út úr landsliðinu Handbolti Síðasta verkefni reyndist dýrt fyrir Sigvalda Handbolti Snorri kynnti EM-strákana okkar Handbolti Åge Hareide látinn Fótbolti Teitur fer á EM sem hornamaður í stað Sigvalda Handbolti „Eitt ótrúlegasta augnablik sem þú sérð í hvaða íþrótt sem er“ Sport Lést á leiðinni heim úr fótboltaleik Enski boltinn Strasbourg - Breiðablik | Tekst Blikum að tryggja sig áfram? Fótbolti Fótboltamaður skotinn til bana Fótbolti Hleyptu Þorsteini ekki heim og vilja ekki að hann fari á EM Handbolti Fleiri fréttir Ómar óstöðvandi og Magdeburg í undanúrslit KA/Þór - Valur | Hungraðar heimakonur í síðasta leik fyrir jól Ómar Ingi fær meiri ábyrgð og tekur við kyndlinum af Aroni Ekkert stríð við Porto og einstakur Þorsteinn nítjándi maður Síðasta verkefni reyndist dýrt fyrir Sigvalda Teitur fer á EM sem hornamaður í stað Sigvalda Snorri kynnti EM-strákana okkar Hleyptu Þorsteini ekki heim og vilja ekki að hann fari á EM Kári og Logi vilja henda Ými út úr landsliðinu Sagður utan hóps fyrir Bjarka og Orra Geggjaðar Eyjakonur á toppinn Þorsteinn Leó að ná sér „langt á undan áætlun“ Birtu tölvupóst þar sem efast er um heilsu forseta IHF Valdi ekki eigin leikmann í landsliðið Halda Orra og Sporting engin bönd Viktor Gísli stóð vaktina er fullkomið gengi Börsunga hélt áfram Snorri kynnir EM-fara í vikunni Mega handvelja lið utan Evrópu inn í Meistaradeildina EM ekki í hættu Á hækjum á milli leikja og þoldi sífellt verri sársauka Uppgjörið: Haukar - Fram 25-27 | Meistararnir unnu toppliðið í naglbít „Fannst við bara lélegir í kvöld“ Botnliðið hrellti Aftureldingu og KA lék sér að eldinum Flott endurkoma FH og Valur vann í 83 marka leik Elliði framlengir dvölina í Gummersbach Þórir í skýjunum: „Sit með lítið tár í augnkróknum“ Tíu mörk frá Hauki ekki nóg Reistad valin best og Katrine Lunde besti markvörðurinn Ómar Ingi fiskaði vítið sem gaf sigurmarkið í Íslendingaslag Katrine Lunde fékk draumaendinn sinn og þær norsku urðu heimsmeistarar Sjá meira
Er ekki kominn tími til að leggja IHF niður? Christer Ahl, fyrrum formaður dómaranefndar IHF, vandar sínum gömlu félögum ekki kveðjurnar. 6. febrúar 2015 11:00