Túnismenn björguðu mótinu á lokamínútunum - útlitið svart hjá Bosníu Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 21. janúar 2015 17:40 Vísir/AFP
Bosníumenn misstu frá sér sigurinn og væntanlega sæti í sextán liða úrslitum þegar liðið tapaði með þriggja marka mun á móti Túnis, 27-24, á HM í handbolta í dag. Túnismenn, hefðu verið úr leik með sigri, en komu til baka í blálokin og tryggðu sér sigurinn með því að skora fimm síðustu mörk leiksins. Túnis hefur nú einu stigi meira en Bosnía fyrir lokaumferðina en á móti Bosníumenn mæta Króötum þá eiga Túnismenn eftir að spila við Íran, lélegasta liðið í B-riðlinum. Túnismenn ættu að eiga tvö stig vís og þar með sæti í sextán liða úrslitum heimsmeistarakeppninnar. Túnis komst í 3-0 í byrjun leiks, var með frumkvæðið allan fyrri hálfleikinn og leiddi með einu marki í hálfleik, 15-14. Túnismenn voru fjórum mörkum yfir, 19-15, eftir sjö mínútna leik í seinni hálfleik en þá fóru Bosníumenn að vinna sig inn í leikinn. Bosníska liðið breytti stöðunni úr 20-22 í 24-22 með frábærum sjö mínútna kafla og voru í frábærum málum þegar sex mínútur voru eftir. Þá fór allt í baklás, Bosníumenn misstu meðal annars tvo menn af velli í tvær mínútur og leikur liðsins hrundi á lokamínútunum, Túnisliðið skoraði síðustu fimm mörkin, tryggði sér sigur og hélt sér um leið á lífi í baráttunni um sæti í sextán liða úrslitunum.
HM 2015 í Katar Mest lesið Jón Daði lagði upp mark í sínum fyrsta byrjunarliðsleik Enski boltinn Bruno til bjargar Enski boltinn „Áran yfir Meistaravöllum er ólýsanleg“ Íslenski boltinn Markvörðurinn Mary fyrst á Madame Tussauds Fótbolti Guðný á leið í aðgerð og missir af næsta verkefni landsliðsins Fótbolti Fyrirliðinn Glódís Perla og Bayern enn með fullt hús stiga Fótbolti Ten Hag gæti farið strax til Ítalíu Fótbolti Arsenal í bílstjórasætið eftir stórsigur á Juventus Fótbolti Höttur hlaut aftur langhæsta styrkinn: „Virkilega góð lyftistöng“ Íslenski boltinn Blaðamannafundur HSÍ blásinn af á elleftu stundu Handbolti Fleiri fréttir Blaðamannafundur HSÍ blásinn af á elleftu stundu Viktor Gísli í úrvalsliði fyrstu tveggja umferða undankeppninnar Andrea öflug í sigri á Söndru og stöllum í Metzungen Dana klikkaði ekki á skoti en Volda tapaði stigi Annar sannfærandi sigur hjá lærisveinum Alfreðs Gísla Uppgjörið: Georgía - Ísland 25-30 | Íslenska liðið spýtti í lófana og gerði nóg í Georgíu Frábær þriggja marka sigur Vals Botnliðið sótti tvö stig út í Eyjar Uppgjör og viðtöl: Stjarnan - Fram 18-24 | Framkonur góðar í Garðabæ Rakel Dögg: Þá eru meiri líkur á sigri Haukar sóttu sigur á Suðurlandið Má búast við hasar í hörkuverkefni Gísli Þorgeir ekki með gegn Georgíu Sonur þjálfarans er markahæstur í Olís deildinni Galdraskot Óðins vekur athygli Öruggur sigur hjá lærisveinum Alfreðs í fyrsta leik í undankeppni EM Utan vallar: Fegurðin í því frumstæða Hrósar Þorsteini í hástert: „Erum búnir að vera að bíða eftir honum“ „Ég fékk bara fullt skotleyfi“ ÍBV, Stjarnan og Grótta áfram eftir útisigra Uppgjörið: Ísland - Bosnía 32-26 | Leiðin á EM hefst á sigri Grikkland lagði Georgíu með minnsta mun Snorri missir ekki svefn, ennþá Segir æðislegt að fá Aron til sín Valskonur óstöðvandi „Þessi vika er gríðarlega mikilvæg“ Frestað vegna veðurs Sjáðu mergjaða línusendingu Viggós Eldamennskan stærsta áskorunin Mestu vonbrigði Þóris þegar stelpurnar hans sýndu vanvirðingu Sjá meira