

Hörmuleg byrjun strákanna okkar gegn Alsír varð þeim sem betur fer ekki að falli.
Ísland er komið af stað á HM í handbolta þrátt fyrir pínlega byrjun gegn Alsír í gær. Strákarnir unnu sín fyrstu stig á mótinu en fyrirliðinn segir deginum ljósara hvað þurfi að gera til að ná árangri í Katar.
Arnór Þór Gunnarsson fékk þungt högg framan á hægra lærið í leiknum gegn Alsír í gær og var hann nokkra stund að hrista það af sér. Hann hefur þó ekki áhyggjur af því að það muni há honum í keppninni.
"Það er engin spurning að mér er létt. Dagurinn eftir Svíaleikinn var erfiður og það er gott að vera kominn á kortið þó svo byrjun þessa leiks hafi ekki alveg verið sú sem maður óskaði sér," sagði Snorri Steinn Guðjónsson, leikstjórnandi íslenska landsliðsins, eftir Alsír-leikinn.
Snorri Steinn Guðjónsson skoraði sögulegt mark fyrir íslenska handboltalandsliðið í sigurleiknum á móti Alsír á HM í handbolta í gær. Fyrra mark Snorra í leiknum var nefnilega tvöfalt tímamótamark.
Landsliðsþjálfarinn segir að það hafi verið lykilatriði gegn Alsír að halda rónni þrátt fyrir mótlætið.
Einar Guðlaugsson, eða Rifilinn eins og hann er oft kallaður, er einn helsti stuðningsmaður íslenska landsliðsins í handbolta en hann hefur fylgt því á mörg stórmót.
Aron Pálmarsson er efstur í stoðsendingum hjá mótshöldurum eftir tvær fyrstu umferðirnar á HM í handbolta í Katar og hann er jafnframt í 3. sæti yfir þá sem hafa átt þátt í flestum mörkum.
Guðjón Guðmundsson og Júlíus Jónasson voru gestir Harðar Magnússonar í HM-kvöldi á Stöð 2 Sport 3 í kvöld þar sem þeir fóru yfir leik Íslands og Alsír á HM í Katar.
Aron Pálmarsson var maður leiksins í sigri Íslands á Alsír í kvöld en eftir erfiða fæðingu er Íslands loksins komið á blað á HM í handbolta.
Arnar Björnsson hitti landsliðsfyrirliðann Guðjón Val Sigurðsson í dag og þeir ræddu saman um leikinn við Frakkland á HM í handbolta á morgun. Þetta er þriðji leikur íslenska liðsins á heimsmeistaramótinu.
Norður-Afríkuþjóðirnar Túnis og Alsír eru þær einu á HM í handbolta í Katar sem hafa slegið við íslenska landsliðinu í skotum í slá eða stöng á mörkum andstæðinganna.
Björgvin Páll Gústavsson var léttur eftir leik kvöldsins enda fyrstu punktarnir komnir í hús á HM í Katar.
Eftir hvern leik íslenska liðsins mun Guðjón Guðmundsson, handboltasérfræðingur Stöðvar 2 Sports, gefa leikmönnum og þjálfaranum einkunnir.
Hörður Magnússon, Guðjón Guðmundsson og Júlíus Jónassonar fóru yfir varnarleik íslenska liðsins á móti Alsír í HM-kvöldinu í gær en Ísland vann átta marka sigur á Alsíringum í öðrum leik sínum á heimsmeistaramótinu í Katar.