Dimma og Bubbi spila pönk saman Þórður Ingi Jónsson skrifar 15. desember 2014 10:30 Gamla pönktónlist Bubba var mikill áhrifavaldur fyrir sveitina. mynd/spessi „
Þetta voru áhrifavaldar hjá okkur, það er ekki spurning,“ segir Ingó Geirdal, söngvari Dimmu, en sveitin mun troða upp ásamt Bubba Morthens í Hörpunni í mars og flytja plöturnar Geislavirkir með Utangarðsmönnum og Lily Marlene með Das Kapital, gömlum pönksveitum Bubba. „Ég og Silli Geirdal, bróðir minn og bassaleikari Dimmu, vorum fremst á einum fyrstu tónleikum Egós á Lækjartorgi árið 1982 sem teknir voru upp fyrir Rokk í Reykjavík. Ég náði aldrei að sjá Utangarðsmenn á tónleikum en ég sá Egó oft og Das Kapital líka. Ég myndi segja að þetta hafi verið fyrstu rokkhljómsveitir Íslands sem manni fannst hættulegar, menn voru reiðir og með meiningar. Textarnir voru sterkir og það var kraftur í þeim,“ segir Ingó. „Það var mikið talað um að fólk vissi ekki við hverju maður mætti búast á Utangarðsmanna-tónleikum, þeir jafnvel slógust á sviði.“ Þarna fær Bubbi líka einstakt tækifæri til að syngja lög sem hann hefur ekki sungið síðan á níunda áratugnum en að sögn Ingós verður Dimmu-keimur yfir lögunum. „Það var hugmynd Bubba að gera það þannig,“ segir hann.
Tónlist Mest lesið Hjálmar Örn fékk hjartaáfall Lífið „Þetta sat náttúrlega í manni í mörg ár“ Lífið Angie Stone lést í bílslysi Tónlist Lifir lífinu við óbærilegan sársauka Lífið „Á fyrsta uppistandi er maður að skíta á sig“ Menning Vilja valdefla konur í brjóstagjöf Lífið Danir senda annan Færeying í Eurovision Lífið Baltasar, Sunneva og Kilja litla njóta lífsins Lífið Steldu stílnum af heimili Kristínar Péturs Lífið Unnur Eggerts, Væb og Ragnhildur Steinunn létu sig ekki vanta Lífið Fleiri fréttir Angie Stone lést í bílslysi „Frelsi til að gera allt sem þig langar til“ Þessi eru tilnefnd til Íslensku tónlistarverðlaunanna Bein útsending: Tilnefningar til Íslensku tónlistarverðlaunanna Draumurinn rættist að syngja með Bubba Gekk 20 metra á 35 mínútum í tíu gráðu frosti The Smashing Pumpkins til Íslands Þau fóru áfram í úrslit söngvakeppninnar Sjá meira