Snorri Steinn sá eini sem fagnaði sigri í kvöld Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 17. desember 2014 22:08 Snorri Steinn Guðjónsson. Vísir/Getty
Snorri Steinn Guðjónsson var eini Íslendingurinn sem fagnaði sigri í frönsku úrvalsdeildinni í handbolta í kvöld en bæði Ásgeir Örn Hallgrímsson og Arnór Atlason urðu að sætta sig við jafntefli á útivelli.Snorri Steinn Guðjónsson skoraði fimm mörk fyrir Sélestat í 31-27 útisigri á Cesson-Rennes. Snorri var næstmarkahæstur í liðinu á eftir Frédéric Beauregard sem skoraði tíu mörk. Frábær seinni hálfleikur lagði grunninn að sigrinum en Sélestat var fjórum mörkum undir í hálfleik, 17-13. Snorri Steinn kom Sélestat yfir í 24-23 en liðið skoraði síðan sjö af næstu tíu mörkum og tryggði sér sigurinn. Þetta var aðeins fjórði sigur Sélestat í 14 leikjum á tímabilinu en liðið var búið að tapa þremur leikjum í röð fyrir leikinn.Ásgeir Örn Hallgrímsson klikkaði á öllum þremur skotunum sínum þegar Nîmes gerði 27-27 jafntefli á heimavelli á móti Créteil.Arnór Atlason skoraði 2 mörk úr 7 skotum þegar Saint Raphael gerði 28-28 jafntefli við Tremblay á útivelli. Saint Raphaël er í 2. til 3. sæti með Paris Saint-Germain en Nimes er í 12. Sætinu og þriðja neðsta sæti deildarinnar, einu stigi á undan Sélestat.
Handbolti Mest lesið Marlena vann Bakgarðshlaupið: „Ég hljóp bara“ Sport Fær sér ís í heita pottinum eftir tæplega 250 kílómetra hlaup Sport Refsing fyrir að blóta gæti flýtt fyrir því að Verstappen hætti Formúla 1 Marlena er sigurvegari Bakgarðshlaupsins Sport Liðsfélagi Arnórs með bitför eftir andstæðing Fótbolti Haaland kastaði boltanum í hnakkann á Gabriel eftir jöfnunarmark City Fótbolti Arteta vildi ekki tjá sig um rauða spjaldið Fótbolti Sögulegur dagur er Thelma sópaði til sín gullverðlaunum Sport Uppgjörið og viðtöl: Fram - Fylkir 2-0 | Langþráður sigur Fram setur níu tær í efstu deild að ári Íslenski boltinn Dagskráin í dag: Blikar geta komist á toppinn Sport Fleiri fréttir Hörmulegur seinni hálfleikur varð þýsku meisturunum að falli Orri skoraði þrjú er Sporting valtaði yfir Íslendingaslaginn Fínn leikur Íslendinganna í Þýskalandi dugði ekki til Þjálfarinn í byrjunarliðinu: „Mér fannst þörf á smá aga í leikinn“ Sjö mörk Jóhönnu hjálpuðu til við að landa fyrsta sigrinum Uppgjörið: Fjölnir - HK 28-27 | Flautumarkið fékk ekki að standa og Fjölnir slapp með sigur Ihor fór mikinn í stórsigri Aftureldingar Fullkomin byrjun lærisveina Arnórs heldur áfram Ólafur með fjögur mörk í fyrsta sigri Karlskrona Aðeins einn löglegur dúkur svo Valur og FH byrja saman í Krikanum Arftaki Kristjáns óvænt hættur Guðmundur miður sín eftir stórtap: „Eitt það versta sem ég hef upplifað lengi“ Elín Klara og Sara Sif sáu um Stjörnuna Slæm byrjun Vals hélt áfram í Garðabænum „Höfðum mýmörg tækifæri til að klára þennan leik miklu fyrr“ „Fyrst og fremst bara ekki nógu sáttur með mína menn“ Gísli Þorgeir bar af í Íslendingaslag kvöldsins Haukar áfram á toppnum með fullt hús stiga Fram áfram með fullt hús Bjarki Már og Orri Freyr með stórsigra í Meistaradeildinni Uppgjörið: FH - ÍBV 33-30 | Góður kafli í fyrri hálfleik skilaði sigri FH-inga Framarar flæktir í óskýrum reglum HSÍ: „Þetta er alveg galið dæmi“ Haukur komið að nítján mörkum í fyrstu tveimur leikjunum í Meistaradeildinni Selfoss átti lítið í Íslandsmeistara Vals „Stefnum á að vera í þessum efri hluta“ Uppgjörið: ÍR - ÍBV 22-22 | Heimakonur komnar á blað Haukur magnaður í sigri á Viktor Gísla og félögum Alfa Brá og Katrín Anna í landsliðið Tímabilið byrjar vel hjá Bjarka sem varð markahæstur í stórsigri Gummersbach gaf mikið eftir í seinni hálfleik Sjá meira
Uppgjörið og viðtöl: Fram - Fylkir 2-0 | Langþráður sigur Fram setur níu tær í efstu deild að ári Íslenski boltinn
Uppgjörið og viðtöl: Fram - Fylkir 2-0 | Langþráður sigur Fram setur níu tær í efstu deild að ári Íslenski boltinn