Innlent

Vill svör um eftirlit með lögreglunni

Aðalsteinn Kjartansson skrifar
Helgi vill vita hvenær hópurinn muni skila niðurstöðum.
Helgi vill vita hvenær hópurinn muni skila niðurstöðum. Vísir / Pjetur
Helgi Hrafn Gunnarsson, þingmaður Pírata, vill svör frá Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni dómsmálaráðherra um hvort koma eigi upp innra eftirliti hjá lögreglunni eða hvort stefnt sé að því að eftirlitið verði alfarið sjálfstætt og óháð löggæsluyfirvöldum. Þetta kemur fram í fyrirspurn sem hann lagði fyrir ráðherrann í dag.

Í fyrirspurninni spyr Helgi einnig að því hvenær vænta megi niðurstöðu starfshóps sem taka átti til skoðunar hvernig komið yrði á virkara eftirliti með starfsháttum lögreglunnar. Hanna Birna Kristjánsdóttir innanríkisráðherra, sem þá var einnig ráðherra lögreglumála, skipaði starfshópinn í júní á þessu ári.

Sigmundur tók við hlutverki dómsmálaráðherra af Hönnu Birnu en hún skipaði starfshópinn.Vísir / GVA
Starfshættir lögreglu hafa verið í deiglunni undanfarna mánuði og nú síðast vegna byssumálsins og skýrslu Geirs Jóns Þórissonar, fyrrverandi yfirlögregluþjóns, um mótmæli á árunum 2008 til 2010. Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu var meðal annars kallaður á fund stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar Alþingis í gær.

Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Helgi spyr Sigmund út í þessi mál en í óundirbúnum fyrirspurnartíma á þingi á mánudag spurði hann út í hvernig dómsmálaráðherrann sæi fyrir sér eftirlitið. „Það er að sjálfsögðu best gert með því að stjórn slíks eftirlits heyri ekki undir sömu stjórn og lögreglan að öðru leyti,“ sagði Sigmundur Davíð en sagði að þræðirnir þyrftu að sjálfsögðu að liggja saman einhvers staðar.

Helgi Hrafn gerði einnig leynilegar reglur um valdbeitingarheimildir lögreglunnar að umtalsefni á þingi í gær en hann var meðal nefndarmanna í allsherjar- og menntamálanefnd þingsins sem fengu að sjá reglurnar. Þingmennirnir máttu ekki halda eftir eintaki af reglunum og þurftu að kvitta bæði fyrir móttöku og skil á þeim.


Tengdar fréttir

Vinna við innra eftirlit lögreglu hafin

Slíkt eftirlit mun að öllum líkindum ekki heyra undir sömu stjórn og lögregla en eftirlitið mun hafa svipað sjálfstæði og saksóknarar gera í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×