Handbolti

Kim Ekdahl hættur í landsliðinu

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Ekdahl du Rietz í baráttunni í úrslitaleik Ólympíuleikanna 2012.
Ekdahl du Rietz í baráttunni í úrslitaleik Ólympíuleikanna 2012. Vísir/Getty
Sænskir handboltaáhugamenn urðu fyrir miklu áfalli í dag þegar Kim Ekdahl du Rietz tilkynnti að hann væri hættur í landsliðinu.

Þessar fregnir koma talsvert á óvart, en Ekdahl du Rietz er aðeins 25 ára.

„Ég er í vandræðum með hnén á mér og hef misst ástríðuna fyrir landsliðinu,“ sagði leikmaðurinn í fréttatilkynningu.

Ekdahl du Rietz, sem hóf ferilinn með Lugi HF, leikur með Rhein-Neckar Löwen og er með samning þar til ársins 2016.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×